Íslenski boltinn

Umfjöllun : Öruggur sigur í Grindavík

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Gilles Mbang Ondo.
Gilles Mbang Ondo. Mynd/Vilhelm
Leik Grindvíkinga og Fram lauk með öruggum sigri heimamanna í kvöld 3-0. Sigurinn hefði getað orðið stærri og það munaði um að það vantaði fjóra lykilleikmenn í lið Fram.

Ólafur Örn Bjarnason var einmitt í þessum leik í fyrsta sinn síðan 2003 í byrjunarliðið í íslenskum fótbolta en hann er núverandi spilandi þjálfari hjá Grindavík.

Leikurinn hófst afar rólega og kom fyrsta markið upp úr nánast engu en þá nýtti Orri Freyr Hjaltalín sér sofandi hátt varnarmanna Fram og stakk boltanum inn fyrir vörnina þar sem Gilles Mbang Ondo var einn á auðum sjó og setti boltann framhjá Hannesi í marki Fram.

Það var varla að dómarinn náði að flauta þangað til Hannes þurfti að taka boltann úr markinu aftur, í þetta sinn kom fyrirgjöf frá Grétari Ólafi Hjartarsyni og hann stakk sér inn fyrir varnarmann Fram og lagði boltann framhjá Hannesi.

Framarar fengu svo dauðafæri til að minnka muninn á 43. Mínútu, þá kom aukaspyrna inn í teig á kollinn á Hlyn Atla Magnússon sem skallaði boltann áfram á fjærstöng þar sem Guðmundur Magnússon var í dauðafæri en náði ekki að hitta boltann. Stuttu seinna flautaði Valgeir Valgeirsson til hálfleiks.

Í síðari hálfleik voru Grindvíkingarnir sterkari og hefðu með betri nýtingu getað skorað fleiri mörk, Hannes varði vel, einnig fékk Gilles Ondo gott færi og Orri Freyr mjög gott skallafæri sem öll fóru forgörðum.

Það var hinsvegar ekkert mál því þeir náðu svo að skora þriðja markið og klára leikinn alveg undir lokin, Ray Anthony Jónsson átti góða sendingu inn fyrir á Scott Ramsay sem skaut en Hannes varði vel út í teig. Þar nýtti Gilles sér sofandi hátt varnarmanna Fram og stakk sér framhjá þeim til að skora sitt annað mark og þriðja mark leiksins.

Eftir þetta flautaði góður dómari leiksins Valgeir Valgeirsson leikinn af. Með þessu tapi falla Fram niður í 4. Sæti aðeins stigi á undan KR sem á leik til góða. Hinsvegar sitja Grindvíkingar enn við botninn en spilamennska þeirra hefur stórbatnað með nýja þjálfaranum.



Grindavík 3 - 0 Fram

1-0 Gilles Mbang Ondo(18.)

2-0 Hafþór Ægir Vilhjálmsson(20.)

3-0 Gilles Mbang Ondo(90.)

Áhorfendur: 773

Dómari: Valgeir Valgeirsson 7

Skot (á mark): 10 -6 (6-1 )

Varin skot: Óskar Pétursson 1 - Hannes Þór Halldórsson 3

Horn: 5 - 4

Aukaspyrnur fengnar:10 - 15

Rangstöður: 4 - 1

Grindavík (4-4-2)

Óskar Pétursson 5

Loic Mbang Ondo 6

Auðunn Helgason 7

Ólafur Örn Bjarnason 6

Jósef Kristinn Jósefsson 6

Scott Mckenna Ramsay 6

Jóhann Helgason 5

Orri Freyr Hjaltalín 7

Hafþór Ægir Vilhjálmsson 6

(74. Óli Baldur Bjarnason)

Gilles Mbang Ondo 7 - maður leiksins

Grétar Ólafur Hjartarson 6

(63. Ray Anthony Jónsson 5)

Fram (4-3-3)

Hannes Þór Halldórsson 5

Kristinn Ingi Halldórsson 6

(78. Tómas Leifsson)

Hlynur Atli Magnússon 6

Jón Orri Ólafsson 4

Daði Guðmundsson 4

Halldór Hermann Jónsson 6

Jón Gunnar Eysteinsson 5

Almarr Ormarsson 4

Ívar Björnsson 4

Guðmundur Magnússon 4

(72. Alexander Veigar Þórarinsson)

Joseph Edward Tillen 4






Fleiri fréttir

Sjá meira


×