Fjölmiðlar: Rooney launahæsti leikmaðurinn í sögu United Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. október 2010 12:55 Wayne Rooney. Nordic Photos / Getty Images
Enskir fjölmiðlar eru nú að keppast við að segja fréttir af Wayne Rooney og nýja samningi hans við Manchester United. Rooney skrifaði í morgun undir nýjan fimm ára samning við félagið sem kom öllum knattspyrnuheiminum í opna skjöldu. Fyrr í vikunni höfðu bæði Rooney og Sir Alex Ferguson, stjóri United, staðfest að Rooney vildi fara. Ferguson sagði þá að félagið hafi verið reiðubúið að gera hann að launahæsta leikmanni Englands. Rooney var samkvæmt gamla samningnum með 90 þúsund pund í vikulaun, miðað við það sem fram hefur komið í fjölmiðlum. Samningurinn sem hann hafnaði var með grunnlaun upp á 110 þúsund pund auk myndarlegra aukagreiðslna sem hefðu híft meðaltalsvikulaun hans upp í 150 þúsund pund. Það er meira en Cristiano Ronaldo fékk á sínum tíma og Rio Ferdinand er með í dag. En nú er verið að greina frá því að sá samningur sem Rooney skrifaði undir í morgun sé meira virði og að hann hafi nánast tvöfaldast í launum. Hann sé nú að fá allt að 180 þúsund punda í vikulaun. Ef það er rétt er hann langlaunahæsti leikmaður í sögu félagsins. Fréttir í vikunni hafa gefið í skyn að Rooney og umboðsmaður hans hafi farið fram á það við önnur félög að hann fengi 250 þúsund pund í vasann í hverri viku - eftir skatt. Hann var þá helst orðaður við Manchester City, Chelsea og Real Madrid. Auk þessa alls þénar Rooney mikið á samningi sínum við styrktaraðila og hvergi meira en hjá íþróttavöruframleiðandanum Nike. „Rooney hefur alltaf verið meiri Nike-maður en Everton- eða United-maður," sagði heimildamaður Goal.com.
Tengdar fréttir Rooney fer ekki neitt - skrifar undir fimm ára samning Wayne Rooney mun skrifa undir fimm ára samning við lið Manchester United og hefur því eytt óvissunni sem skapaðist í vikunni. Þá upplýsti sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri félagsins að Rooney vildi yfirgefa félagið. Í kjölfarið hófst atburðarrás sem endaði með því að Rooney hefur ákveðið að vera hjá liðinu næstu fimm árin. 22. október 2010 11:46 Lou Macari: Verður erfitt fyrir Rooney Lou Macari, fyrrum leikmaður Manchester United og einn helsti sérfræðingur MUTV-sjónvarsstöðvarinnar, segir að Wayne Rooney eigi mikla vinnu framundan ef hann ætlar sér að endurvinna traust liðsfélaga sinna og stuðningsmanna félagsins. 22. október 2010 12:39 Ferguson: Wayne skilur nú hversu stórt félag United er Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að atburðir síðustu daga kunni að hafa haft áhrif á Wayne Rooney og ákvarðanatöku hans. 22. október 2010 12:29 Rooney: Stjórinn sannfærði mig Wayne Rooney, sem skrifaði undir fimm ára samning við Manchester United í dag, segir að það hafi verið Alex Ferguson sem hafi sannfært hann um að vera áfram hjá félaginu. 22. október 2010 12:09 Mest lesið Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Íslenski boltinn Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Afsalar sér óvænt öllum heimsmeistaratitlum Sport BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti AC Milan kaupir Ramos fyrir metfé Fótbolti Hleypur í óvenjulegum aðstæðum: „Rosalegur hiti hérna“ Sport Guðmundur Andri í FH eins og faðir hans forðum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Sjá meira
Rooney fer ekki neitt - skrifar undir fimm ára samning Wayne Rooney mun skrifa undir fimm ára samning við lið Manchester United og hefur því eytt óvissunni sem skapaðist í vikunni. Þá upplýsti sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri félagsins að Rooney vildi yfirgefa félagið. Í kjölfarið hófst atburðarrás sem endaði með því að Rooney hefur ákveðið að vera hjá liðinu næstu fimm árin. 22. október 2010 11:46
Lou Macari: Verður erfitt fyrir Rooney Lou Macari, fyrrum leikmaður Manchester United og einn helsti sérfræðingur MUTV-sjónvarsstöðvarinnar, segir að Wayne Rooney eigi mikla vinnu framundan ef hann ætlar sér að endurvinna traust liðsfélaga sinna og stuðningsmanna félagsins. 22. október 2010 12:39
Ferguson: Wayne skilur nú hversu stórt félag United er Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að atburðir síðustu daga kunni að hafa haft áhrif á Wayne Rooney og ákvarðanatöku hans. 22. október 2010 12:29
Rooney: Stjórinn sannfærði mig Wayne Rooney, sem skrifaði undir fimm ára samning við Manchester United í dag, segir að það hafi verið Alex Ferguson sem hafi sannfært hann um að vera áfram hjá félaginu. 22. október 2010 12:09