Innlent

Leggja slitlag síðustu metrana að Landeyjahöfn

Verktakar á Landeyjasandi vinna nú hörðum höndum við að leggja slitlag á síðustu 800 metrana af veginum niður að nýju Landeyjahöfninni, en Herjólfur byrjar áætlunarferðir þangað í dag.

Að sögn talsmanns verktakans, Suðurverks, verður allt til reyðu í tæka tíð. Herjólfur fór í sína síðustu áætlunarferð frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar í morgun og er nú á leið aftur til Eyja.

Þaðan fer skipið svo síðdegis til hinnar nýju Landeyjahafnar, í fyrstu áætlunarferðina. Siglingaleiðin á milli nýju hafnarinnar og Eyja er 30 til 40 mínútur, en hefur verið átt í þrjár klukkustundir á milli Eyja og Þorlákshafnar.

Á móti lengist ökuferðin á milli Eyja og höfuðborgarsvæðisins töluvert. Umferðarþungi mun aukast frá Þrengslaafleggjarnum í Svínahrauni, austur yfir Hellisheiði, í gegn um Selfoss um Suðurlandsveg og í gegnum Hellu og Hvolsvöll uns beygt er til hægri niður á Bakka, skammt frá Markarfljóti, eða Eyjafjallajökli.

Heimamenn, beggja vegna sundsins, binda vonir við að aukna samvinnu í atvinnu- og félagslífi milli Eyjamanna og íbúa Suðurlands með tilkomu nýju hafnarinnar og siglingaleiðarinnar.








Tengdar fréttir

Óformleg prufusigling

Herjólfur sigldi sína fyrstu ferð í Landeyjahöfn á laugardagskvöld en ferðin var hugsuð sem prufuferð til að ganga úr skugga um að allt væri eins og vera bæri. Formleg jómfrúarferð verður farin á

Hefur áhrif á allt daglegt líf

„Ég held það megi orða þannig að þetta kemur til með að hafa áhrif á allt okkar daglegt líf," segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum um tilkomu Landeyjahafnar.

Landeyjahöfn vígð í dag

Landeyjahöfn verður vígð í dag. Ferðatíminn á sjó milli lands og Eyja styttist verulega, úr tæpum þremur klukkustundum í rúmar 30 mínútur og samtals styttast því sigling og akstur til Reykjavíkur úr fjórum klukkustundum í tvær og hálfa klukkustund, segir í fréttatilkynningu.

Landeyjahöfn kostar fjóra milljarða

Gerð Landeyjahafnar kostaði fjóra milljarða króna, samkvæmt upplýsingum í fréttatilkynningu frá Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu og Siglingastofnun.

Nýir möguleikar með Landeyjahöfn

Hafnarmannvirkið nýja í Landeyjum er með stærstu samgönguframkvæmdum síðustu árin. Landeyjahöfn mun líka hafa víðtækari áhrif en við gerum okkur grein fyrir. Fyrir utan að stórbæta daglegar samgöngur milli lands og Eyja opnar hún nýja möguleika í atvinnu- og félagslífi.

Samgönguhindrun rutt úr vegi

Samgönguhindrun hefur verið rutt úr vegi milli Vestmannaeyja og lands því nú tekur ferðin fimmfalt skemmri tíma en áður.

Herjólfur í Landeyjahöfn - myndir

Herjólfur sigldi undir miðnætti í gærkvöld í Landeyjahöfn til prófunar en reglulegar áætlunarsiglingar milli hafnarinnar og Eyja hefjast á miðvikudag í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×