Innlent

Tveir fluttir á slysadeild eftir að eldur kom upp í íbúð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Eldur kom upp í íbúð í fjölbýlishúsi í Hraunbæ 107 b í kvöld.. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og er reykræsting í gangi. Talið er að kviknað hafi í sófa, en eldurinn var minniháttar samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðnu. Tveir úr íbúðinni voru fluttir á slysadeild til skoðunar vegna gruns um að þeir hefðu fengið snert af reykeitrun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×