Erlent

Þjóðarleiðtogar senda samúðarkveðjur

158 fórust í slysinu. Helstu þjóðarleiðtogar heims hafa sent Indverjum samúðarbréf.
158 fórust í slysinu. Helstu þjóðarleiðtogar heims hafa sent Indverjum samúðarbréf. Mynd/AP
Allir helstu þjóðarleiðtogar heims hafa sent indversku þjóðinni samúðarkveðjur vegna flugslyssins á Indlandi í gær þar sem 158 manns létust. Rannsókn á slysinu er hafin, en flugritar flugvélarinnar virðast ekki enn komnir í leitirnar öfugt við það sem haldið var fram í gær.

Mangalore flugvöllur þykir afar erfiður til lendingar þar sem hann er á hæð umkringdur bröttum hlíðum og brakið er dreift í miklum bratta við flugvöllinn. Embættismenn segja of snemmt að segja til um orsakir slyssins. Allir farþegar flugvélarinnar voru indverskir á leið heim að hitta fjölskyldur sínar þar sem flestir þeirra vinna á Persaflóasvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×