Haukamenn "skjóta" aðeins á markaskorara sína á móti KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. maí 2010 12:00 Pétur Ásbjörn Sæmundsson, númer 23 fyrir miðju, í leiknum á móti KR. Mynd/Valli
Haukar náðu 2-2 jafntefli á móti Íslandsmeistaraefnunum KR í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla þökk sé mörkum frá Úlfari Hrafni Pálssyni og Pétri Sæmundssyni. Þeir voru báðir að skora í sínum fyrsta leik í efstu deild. Þeir Úlfar og Pétur fá skemmtileg skot í viðtölum á heimasíðu Hauka fyrir stórleikinn á móti FH á Vodafonevellinum í kvöld. Úlfar Hrafn Pálsson kom inn á sem varamaður á 72. mínútu á móti KR og minnkaði muninn í 2-1 sjö mínútum síðar. Úlfar viðurkennir að hann hafi kannski verið of æstur en æsingurinn skilaði sér í marki. „Ég held að menn verði að vera rólegri en þeir voru á móti KR allavega ef ég tala frá minni reynslu þá var ég allt of æstur," sagði Úlfar í viðtali á heimasíðu Hauka og það voru fleiri sem tóku eftir þessu. „Úlli var síðan lagður inn á taugaveiklunardeild Landspítalans eftir leik en hann ætti að vera tilbúinn á sunnudaginn," sagði Hilmar Rafn Emilsson í gríni um félaga sinn. Það var líka skotið á Pétur Ásbjörn Sæmundsson sem tryggði Haukum jafntefli með glæsilegu skallamarkið á 88. mínútu. „Ég held að það séu allir komnir á jörðina nema Pétur Ásbjörn. Hann er kominn úr geimnum og niður í skýin og hann verður kominn á jörðina fyrir FH leikinn," sagði Úlfar um hetjuna í KR-leiknum og Hilmar Rafn Emilsson skaut líka vel á félaga sinn. „Menn tóku kvöldið í að fagna stiginu en síðan byrjað að undirbúa sig fyrir næsta leik, allir nema Pjási (Pétur Ásbjörn). Hann er á æfingu með Lykla-Pétri og félögum núna og er ekkert væntanlegur á næstunni," sagði Hilmar Rafn og það er ljóst að húmorinn er í fyrirrúmi hjá leikmönnum nýliðanna sem komu svo á óvart á KR-vellinum á þriðjudaginn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina Sjá meira