Gummi Ben: Þetta gefur okkur þrjú stig og það er mikið fyrir okkur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. ágúst 2010 22:06 Guðmundur Benediktsson, þjálfari Selfoss
Guðmundur Benediktsson, þjálfari Selfoss, hélt greinilega rosalega ræðu í hálfleik á leik liðsins við Keflavík í kvöld. Keflavík var með öll völd á vellinum og 2-0 forustu í hálfleik en Selfoss skoraði þrjú mörk í seinni hálfleik og tryggði sér gríðarlega mikilvægan sigur. „Ég er gríðarlega stoltur af strákunum og hér sýndu menn ótrúlegan karakter í seinni hálfleik. Við rúlluðum aðeins yfir það í leikhléinu hvernig menn vildu muna eftir fyrsta leiknum á þessum velli og það sýndi sig bara í seinni hálfleik hvernig við ætluðum að muna eftir honum. Þetta var frábær endurkoma gegn sterku Keflavíkurliði sem fór illa með okkur í fyrri hálfleik. Við sýndum sem betur fer klærnar í seinni hálfleik, gerðum þrjú góð mörk og erum gríðarlega sáttir," sagði Guðmundur. „Keflavík spilaði feykivel í fyrri hálfleik og betur en við. Í seinni hálfleik vorum við bara sterkari aðilinn. Maður getur kannski ekki ætlast til þess að gera þrjú mörk í einum hálfleik á móti svona liði eins og Keflavík en við gerðum það í dag og maður getur því ekki annað en verið glaður og gríðarlega stoltur," sagði Guðmundur sem var ánægður með framherjana Viktor Unnar Illugason og Viðar Örn Kjartansson sem gerðu útslagið í lokin. „Viktor gerir mark og leggur upp mark fyrir Viðar. Viðar nær í vítið og skorar síðan sigurmarkið. Viðar er frábær knattspyrnumaður og frábær sóknarmaður. Hann er að koma úr erfiðum meiðslum en ég vissi að hann yrði hungraður á sínum velli og í sínu bæjarfélagi að koma hér inn og skora í sínum fyrsta leik á þessum velli," sagði Guðmundur. Og hvaða þýðingu hefur þetta fyrir Selfossliðið? „Þetta gefur okkur þrjú stig og það er mikið fyrir okkur," svaraði Guðmundur að bragði.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Everton - Arsenal | Skytturnar vilja skjóta sér aftur upp á topp Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Fleiri fréttir Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Sjá meira