Segja óþarft að hækka álögur 17. desember 2009 04:45 Sigðurður Magnússon Fyrrverandi bæjarstjóri Álftaness segir skuldir bæjarins ofmetnar og tekjur og eignir vanmetnar í nýrri skýrslu. Fréttablaðið/Stefán „
Við höfnum algjörlega þeim hugmyndum sem settar hafa verið fram um hækkanir fasteignaskatta, útsvars og stórfellds niðurskurðar á þjónustu til að leysa rekstrarvanda sveitarfélagsins og vísum í því sambandi til boðaðra aðgerða ríkisstjórnar um auknar skattaálögur,“ segja bæjarfulltrúar minnihluta Á-listans á Álftanesi. Fulltrúar Á-listans telja rangt að segja skuldir og skuldbindingar Álftaness vera 7,4 milljarða króna. Nær sé að tala um að skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins séu um fjórir milljarðar. Það sé meðal annars vegna þess að ekki sé tekið tillit til hagræðingar af leiguskuldbindingum og þess að í það stefni að þær lækki um fjörutíu prósent um áramótin og skuldbindingar falli þannig úr tæpum þremur milljörðum í um 1,7 milljarða. „Af þessum fjórum milljörðum má rekja einn milljarð beint til efnahagshrunsins á Íslandi,“ segja þeir og bæta við að eignir sveitarfélagsins séu vanreiknaðar um allt að ríflega tvo milljarða króna vegna vanmats á lóðum og löndum. Meðal skuldbindinga er samningur við Fasteign ehf. um leigu á íþróttamannvirki og sundlaug. Leigan hefur nú verið lækkuð og á að nema um 155 milljónum króna á næsta ári. Fulltrúar Á-listans benda á að samningurinn við Fasteign hafi verið samþykktur samhljóða í bæjarstjórn á árinu 2006. Skýrsla frá ráðgjafafyrirtæki hafi sýnt að sveitarfélagið réði við fjárfestinguna og bæjaryfirvöld metið það svo að ný sundlaugarmannvirki, sem séu senn skólamannvirki og til almenningsnota, myndu styrkja búsetu á Álftanesi og auðvelda uppbyggingu í nýjum miðbæ. Hluti af fjárfestingunni kæmi því til baka með nýjum tekjum. - gar
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Lindsey Graham er látinn Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira