Rændi tölvubanka fyrir sjúkrareikningum sonarins Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 3. júlí 2009 16:23 Skjámynd úr EVE Online.
Ebank bankinn í íslenska tölvuleiknum EVE Online hefur vakið mikla athygli á heimsvísu síðastliðinn mánuð. Ástæðan er sú að spilarinn Ricdic, sem var hátt settur í bankanum, stakk af með innistæður annarra leikmanna og seldi þær á svörtum markaði fyrir alvöru peninga. Grein um málið birtist meðal annars í vefútgáfu New York Times og víðar. Það var þó ekki fyrr en í dag sem fréttastofa Reuters birti loks viðtal við svikahrappinn. Hann reyndist vera 27 ára gamall Ástrali að nafni Richard. Hann notaði féð til að greiða fyrir sjúkrakostnað veiks sonar síns og afborgun á húsinu. „Þetta var ákvörðun sem ég tók bara allt í einu," sagði maðurinn. „Ég er alls ekki stoltur af þessu, enda er ég ekkert að gorta mig. En ef ég þyrfti aftur að bregðast við svona aðstæðum, þá myndi ég líklegast gera þetta aftur eins." Alls stal maðurinn um 200 milljörðum af kredits, en það er gjaldmiðill leiksins, og seldi fyrir andvirði um 640 þúsund króna. Leikurinn grundvallast á algjöru frelsi spilaranna og því braut maðurinn enga skilmála með svikunum. Hins vegar var aðgangi mannsins að leiknum eytt eftir að upp komst að hann hafði selt kredits í raunheiminum, en það er með öllu bannað. Bankinn ku þó vera vel staddur fjárhagslega, enda með alls 2,3 billjónir kredits í bundnum innlánum.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Sjá meira