Olía gæti fundist undir Íslandi 7. apríl 2009 18:45
Olíu gæti verið að finna undir norðausturhluta Íslands, að mati jarðfræðings hjá Olíustofnun Noregs. Hann segir að bora verði djúpt undir þykk hraunlög til að finna það áhugaverðasta.Í Olíustofnun Noregs í Stavanger starfa þeir sérfræðingar sem búa yfir hvað mestri þekkingu um möguleika Drekasvæðisins. Christian Magnus jarðfræðingur þar segir að af hljóðbylgjumælingum frá Jan Mayen hryggnum megi ráða að þar sé að finna merki um að minnsta kosti gas í jarðlögum en til að komast að því hvort borgi sig að vinna það verði að bora niður til að sjá magnið.Jarðfræðingurinn veltir því upp hvað leynist undir sjálfu Íslandi því vísbendingar séu um að Jan Mayen-hryggurinn teygi sig undir landið. Vilji menn bora verði það að gerast á norðausturhluta Íslands í von um að finna syðsta hluta Jan Mayen-hryggjarins. Ekkert sé hægt að fullyrða um olíu en þetta sé spennandi. Bora verði mjög djúpt undir hraunlög til að komast niður á það áhugaverðasta, segir Christian Magnus.Sá Norðmaður sem lýst hefur hvað mestri bjartsýni um Drekasvæðið telur að þar leynist álíka verðmæti og Noregshafi. Terje Hagevang hjá Sagex Petrolium rifjar þó upp þegar Statoil taldi sig hafa fundið gríðarstóra gaslind við Vestur-Grænland. Þegar borað var niður fannst hins vegar ekkert, allt var þurrt. Í færeyska landgrunninu sé búið að leita í níu ár án þess að nægilega mikið hafi fundist af olíu og gasi fram til þessa. Hann varar Íslendinga við að búast við skyndigróða. Það þýði ekki að halda að þetta sé svo einfalt að menn verði olíuþjóð bara svona allt í einu. Þannig gerist það ekki.Íslenski olíuverkfræðingurinn Hafsteinn Ágústsson hjá StatoilHydro í Bergen hvetur menn til að spara yfirlýsingarnar. Fara varlega, eins og Norðmenn hafi gert, og gera þetta almennilega og af skynsemi, og sjá svo til hvað verði úr þessu.
Tengdar fréttir Spáir því að Íslendingar verði olíuþjóð Íslendingar eiga eftir að verða olíuþjóð, segir helsti sérfræðingur Noregs í Jan Mayen svæðinu, og líkir því við verðmætustu olíusvæði heims. Nýjustu hljóðbylgjumælingar sem gerðar voru á Drekanum í fyrra lofa góðu og mikill áhugi er meðal olíufélaga að kaupa upplýsingarnar. 30. mars 2009 19:00 Olíuskattar Íslands draga úr áhuga á Drekaútboðinu Áformuð skattheimta íslenskra stjórnvalda af olíuvinnslu hrekur olíufélög frá því að taka þátt í Drekaútboðinu. Þetta segir forstjóri norsks olíufélags sem spáir því að umsækjendur verði teljandi á fingrum annarrar handar þegar fresturinn rennur út þann 15. maí. 2. apríl 2009 18:45 Vinnsla á Drekasvæðinu hugsanlega öll neðansjávar Olía- og gasvinnsla af Drekasvæðinu yrði hugsanlega öll neðansjávar og fjarstýrt úr landi og án borpalla á yfirborði sjávar. 5. apríl 2009 19:16 Drekinn þarf 70-80 dollara olíuverð Olíuverð þyrfti að vera milli sjötíu og áttatíu dollarar tunnan og mikil olía að finnast til að menn ráðist í uppbyggingu á Drekasvæðinu, að mati sérfræðinga í Noregi. Minnst átta ár eru í að olíuvinnsla geti verið komin þar á fullt. 4. apríl 2009 18:51 „Bíðið bara þangað til græningjarnir koma líka til Íslands“ Olíuútboð Íslendinga eykur þrýsting á ríkisstjórn Noregs að leyfa olíuleit á norska hluta Jan Mayen-svæðisins. Andstaða er innan norsku stjórnarflokkanna gegn nýjum vinnslusvæðum á norðurslóðum. 3. apríl 2009 19:30 Olíuleit skapar störf norðaustanlands Fjöldi starfa gæti skapast á norðausturhorni Íslands á næstu árum, verði ráðist í olíuleit á Drekasvæðinu. Bara þyrluþjónusta við olíuborpalla kallar á tugi starfsmanna. 1. apríl 2009 20:44 Olían lekur upp úr Drekasvæðinu Gervihnattamyndir benda til þess að olía leki af hafsbotni og til yfirborðs á bletti sunnarlega á Drekasvæðinu. Þetta kom fram á ársfundi Orkustofnunar í Reykjavík í dag. Bresk-hollenskt fyrirtæki, sem sérhæfir sig í olíu- og málmleit með gervihnöttum, fann olíulekann nýlega en hann þykir styrkja vísbendingar um að olíu sé að finna á Drekanum. 31. mars 2009 19:15 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Fleiri fréttir Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum Sjá meira
Spáir því að Íslendingar verði olíuþjóð Íslendingar eiga eftir að verða olíuþjóð, segir helsti sérfræðingur Noregs í Jan Mayen svæðinu, og líkir því við verðmætustu olíusvæði heims. Nýjustu hljóðbylgjumælingar sem gerðar voru á Drekanum í fyrra lofa góðu og mikill áhugi er meðal olíufélaga að kaupa upplýsingarnar. 30. mars 2009 19:00
Olíuskattar Íslands draga úr áhuga á Drekaútboðinu Áformuð skattheimta íslenskra stjórnvalda af olíuvinnslu hrekur olíufélög frá því að taka þátt í Drekaútboðinu. Þetta segir forstjóri norsks olíufélags sem spáir því að umsækjendur verði teljandi á fingrum annarrar handar þegar fresturinn rennur út þann 15. maí. 2. apríl 2009 18:45
Vinnsla á Drekasvæðinu hugsanlega öll neðansjávar Olía- og gasvinnsla af Drekasvæðinu yrði hugsanlega öll neðansjávar og fjarstýrt úr landi og án borpalla á yfirborði sjávar. 5. apríl 2009 19:16
Drekinn þarf 70-80 dollara olíuverð Olíuverð þyrfti að vera milli sjötíu og áttatíu dollarar tunnan og mikil olía að finnast til að menn ráðist í uppbyggingu á Drekasvæðinu, að mati sérfræðinga í Noregi. Minnst átta ár eru í að olíuvinnsla geti verið komin þar á fullt. 4. apríl 2009 18:51
„Bíðið bara þangað til græningjarnir koma líka til Íslands“ Olíuútboð Íslendinga eykur þrýsting á ríkisstjórn Noregs að leyfa olíuleit á norska hluta Jan Mayen-svæðisins. Andstaða er innan norsku stjórnarflokkanna gegn nýjum vinnslusvæðum á norðurslóðum. 3. apríl 2009 19:30
Olíuleit skapar störf norðaustanlands Fjöldi starfa gæti skapast á norðausturhorni Íslands á næstu árum, verði ráðist í olíuleit á Drekasvæðinu. Bara þyrluþjónusta við olíuborpalla kallar á tugi starfsmanna. 1. apríl 2009 20:44
Olían lekur upp úr Drekasvæðinu Gervihnattamyndir benda til þess að olía leki af hafsbotni og til yfirborðs á bletti sunnarlega á Drekasvæðinu. Þetta kom fram á ársfundi Orkustofnunar í Reykjavík í dag. Bresk-hollenskt fyrirtæki, sem sérhæfir sig í olíu- og málmleit með gervihnöttum, fann olíulekann nýlega en hann þykir styrkja vísbendingar um að olíu sé að finna á Drekanum. 31. mars 2009 19:15