Innlent

Þukl og gröfufimi á landbúnaðarsýningunni Glætu

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Reiðhöllin í Borgarnesi
Reiðhöllin í Borgarnesi
Landbúnaðarsýningin Glæta fer fram í reiðhöllinni í Borgarnesi nú um helgina og hefst klukkan 15 á föstudaginn. Unnið hefur verið að undirbúningi sýningarinnar um tveggja mánaða skeið.

Fyrirtæki sem þjónusta bændur á hinum ýmsu sviðum koma til með að kynna vörur sínar og þjónustu. Það er von aðstandenda að grundvöllur skapist fyrir bændur að hittast árlega og kynna sér nýja tækni og afurðir landbúnaðarins.

Þá er einnig stutt í fjörið á sýningunni. Meðal þess sem er á dagskrá er að verðlauna besta þuklarann í hrútaþukli, keppni í gröfufimi, fegurðarsamkeppni íslenska hundsins, fræðsla um íslensku landnámshænuna auk þess sem Örn Árnason kemur til með að skemmta bæði börnum og fullorðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×