Reyndu að bera eld að dyrum Alþingishússins 22. janúar 2009 07:10 Frá mótmælunum í gærkvöldi. MYND/Vilhelm
Tveir lögreglumenn slösuðust og voru fluttir á slysadeild eftir að mótmælendur grýttu þá með gangstéttarsteinum við Stjórnarráðið í nótt. Annar lögreglumannanna er enn á slysadeildinni, meðal annars með heilahristing. Fleiri lögreglumenn skrámuðust í grjótkastinu en varðstjóri segir að hjálmar og skildir hafi komið í veg fyrir að verr hafi farið auk þess sem nokkrir mótmælendur hafi komið lögreglu til hjálpar. Að minnsta kosti einn mótmælandi var fluttur á slysadeild eftir að hafa fengið piparúða í augun og sjúkraflutningamenn aðstoðuðu þó nokkra mótmælendur á staðnum, eftir að þeir höfðu líka fengið úða í augun. Skemmdir voru unnar á aðaldyrum Alþingishússins og reynt að bera eld þar að en lögreglumenn komu í veg fyrir það. Sprengdu þeir meðal annars táragassprengjur á Austurvellinum, sem ekki hefur gerst síðan 30. mars 1949, í miklum mótmælum gegn inngöngu Íslands í Atlantshafsbandalagið. Eldar voru líka kveiktir fyrir utan Þjóðleikhúsið, þar sem samfylkingarmenn réðu ráðum sínum og fyrir utan stjórnarráðshúsið. Að sögn lögreglu voru aðgerðir mun harðari í nótt en í fyrrinótt, en kyrrð komst á um klukkan þrjú í nótt. Enginn var handtekinn. Um það bil hundrað lögregluþjónar voru á vakt frá því að mótmæli hófust í gærdag og þar til þeim lauk. Var meðal annars fenginn liðsauki frá Keflavík og Selfossi. Mótmælin á Akureyri voru hins vegar friðsöm þar sem hátt í hundrað manns komu saman á Ráðhústorginu og kveiktu í lítlum bálkesti. Þar lauk mótmælum á tólfta tímanum.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira