Ron Howard hvetur Vatíkansmenn til að sjá Engla og djöfla Atli Steinn Guðmundsson skrifar 4. maí 2009 08:30 Ron Howard. Péturskirkjan í baksýn.
Leikstjórinn Ron Howard hvetur embættismenn Vatíkansins til að sjá kvikmyndina Englar og djöflar áður en þeir gagnrýna hana. Þarna er um að ræða annað stykki úr smiðju Dan Brown en margir minnast bókarinnar og kvikmyndarinnar Da Vinci-lykillinn sem olli slíkum úlfaþyt, hvort tveggja innan Vatíkansins sem kaþólsku hreyfingarinnar Opus Dei, að menn muna varla annað eins. Ron Howard leikstýrir Englum og djöflum og kann þeim Vatíkansmönnum litlar þakkir. Ekki var nóg með að honum væri þverneitað um aðgang að kaþólskum kirkjum til að kvikmynda hluta verksins heldur sakar hann Vatíkanið einnig um að hafa kippt í alla spotta sem það náði til í þeim tilgangi að komið yrði einnig í veg fyrir myndatökur í nágrenni kirknanna. Vatíkanið neitar að segja orð við fjölmiðla um myndina eða efni hennar en að lokum tókst ítölskum blöðum að ná þeim athugasemdum upp úr 102 ára gömlum ítölskum biskupi að myndin væri ákaflega niðurlægjandi og neikvæð í garð kirkjulegra gilda og mikil ófrægingarherferð fyrir kirkjuna. Howard gerir sem minnst úr þessu og bendir hæverkslega á að enginn þeirra, sem fram að þessu hefur hellt úr skálum reiði sinnar yfir hann sjálfan, myndina og rithöfundinn Dan Brown, hafi séð myndina. Brown hefur sjálfur boðað nýja skáldsögu með haustinu en er þögull sem gröfin um efni hennar.
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Sjá meira