Erlent

Braut bæði hælbeinin á flótta undan lögreglu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Hjón sem búa skammt frá Árósum í Danmörku hringdu á lögreglu þegar þau urðu vör við þjóf á heimilinu. Sá forðaði sér upp á þak þegar lögregla mætti á staðinn. Þaðan stökk hann fram af en í fallinu áttaði hann sig á því, sér til skelfingar, að húsið var tveggja hæða en ekki einlyft. Hann hafnaði á hörðu bílastæðinu með þeim afleiðingum að hann braut á sér bæði hælbeinin og var lögreglunni því auðveld bráð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×