Erlent

Framtíð Guantanamo-fanga umdeild

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Guantanamo-fangelsið á Kúbu.
Guantanamo-fangelsið á Kúbu.

Barack Obama Bandaríkjaforseti segir það ekki útilokað að einhverjir af þeim föngum, sem nú eru í haldi í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu, verði fluttir í bandarísk fangelsi þegar Guantanamo verður lokað. Dick Cheney, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, segir þessa ákvörðun Obama hið mesta óráð og að viðsnúningur forsetans á stefnu George Bush í málefnum hryðjuverkamanna geti stefnt bandarískum almenningi í voða. Obama svarar því til að engum verði sleppt úr haldi sem sé háskalegur almenningi. Forsetinn á í vök að verjast í Guantanamo-málinu þar sem stór hluti þingmanna er honum ósammála um lokun fangelsisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×