Óvíst hvað Birgitta gerir verði tillaga Bjarna felld 12. júlí 2009 12:56 Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar. Mynd/GVA
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, ætlar að styðja tillögu um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Hún hefur hins vegar ekkert sagt um það hvernig hún greiðir atkvæði um tillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Mikið hefur verið gert úr ræðu Birgittu Jónsdóttur þingmanns Borgarahreyfingarinnar í umræðum um þingsályktun ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu á Alþingi í gær og hún túlkuð á þann veg að hún ætlaði ekki að styðja tillöguna. En þótt Birgitta lýsti ekki yfir stuðningi við tillöguna sagði hún heldur ekkert um það hvernig hún myndi að lokum greiða atkvæði. Hún reifaði hugmyndir sínar um að Alþingi hefði þarfari hnöppum að hneppa í því ástandi sem nú ríkti en að ræða aðildarumsókn að Evrópusambandinu.Sumarþing á villigötum „Sumarþingið er á villigötum, við þingmenn á villigötum, þjóðin ráðvillt og á meðan hrynja fyrirtækin og inniviðir samfélags okkar eins og spilaborgir. Forgangsröðun sumarþings ætti að vera eftirfarandi, endurreisn fjármálakerfisins, lækka stýrivexti, lækka raforkuverð til landbúnaðar, tryggja að björgunarnetin sem sett voru út til að aðstoða fjölskyldur landsins í þeirri neyð sem þær eru að kljást við séu ekki full af götum," sagði þingmaðurinn. Birgitta sagði aðildarviðræður við núverandi aðstæður ekki rétta forgangsröðun. „Því meira sem ég hef hugleitt þetta ferli, því sannfærðari er ég um að það er algerlega ábyrgðarlaust og sínir umheiminum enn og aftur að hér býr þjóð sem er ekki fær um að axla ábyrgð eða taka afdráttalausar ákvarðanir. Við erum semsagt að fara að ganga til aðildarviðræðna án þess að vilja ganga í ESB. Hvaða rugl er það?"Hefur ekki umboð Birgitta sagði að með umsókn að Evrópusambandinu hljóti Íslendingar að ætla sér að ganga í Evrópusambandið og hún hefði ekki trú á að Íslendingar fengju þar einhverja sérmeðferð. Því vildi hún að þjóðin fengi að taka afstöðu til niðurstaðna þeirrar vinnu sem nú lægju fyrir eftir yfirferð utanríkismálanefndar. „Að sækja um aðild hlýtur að þýða að við viljum gagna í ESB. Þar eð ég hef ekki umboð frá mínum kjósendum til að taka slíka ákvörðun mun ég styðja tvöfallda þjóðaratkvæðagreiðslu sem hægt væri að stefna saman eigi síðar en í kringum upphaf haustþings." Hvað Birgitta gerir svo ef breytingartillaga um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu verður felld, á eftir að koma í ljós við afgreiðslu málsins á Alþingi. En þingflokkur hennar lýsti því yfir við upphaf unmræðna um málið, að hann myndi styðja málið enda væri gert ráð fyrir að þjóðin réði því að lokum í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort drög að aðildarsamningi yrðu samþykkt.
Tengdar fréttir Ólíklegt að kosið verði um ESB á mánudag Ólíklegt er að hægt verði að greiða atkvæði um þingsályktun um aðildarumsókn að Evrópusambandinu á mánudag, eins og forsætisráðherra vonaðist til. Umræður um málið hafa haldið áfram á Alþingi frá klukkan hálf ellefu í morgun og lauk nú á þriðja tímanum. Næsti fundur Alþingis er klukkan þrjú á mánudag en nú eru enn 17 manns á mælendaskrá. 11. júlí 2009 14:59 Ekki útilokað að búið verða sækja um ESB-aðild í næstu viku Ekki er útilokað að Íslendingar verði búnir að sækja um aðild að Evrópusambandinu fyrir lok næstu viku að mati utanríkisráðherra. Þingsályktunartillaga um aðildarumsókn fer í síðari umræðu á Alþingi á morgun en sjálfstæðismenn ætla að óbreyttu að greiða atkvæði gegn tillögunni. 9. júlí 2009 18:44 Kvartaði undan samflokksmönnum Alþingi Þingmenn ræddu kosti og galla þess að senda Evrópusambandinu (ESB) aðildarumsókn í allan gærdag og fram eftir kvöldi, og stóð þingfundur enn þegar Fréttablaðið fór í prentun. 11. júlí 2009 03:15 Útlit fyrir að aðildarviðræður verði samþykktar með 35 atkvæðum Útlit er fyrir að þingsályktunartillaga um aðild að Evrópusambandinu verði samþykkt með 35 greiddum atkvæðum á Alþingi. Fimm þingmenn Vinstri grænna, þar af einn ráðherra, munu greiða atkvæði gegn tillögunni. 11. júlí 2009 18:30 Vill tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, telur að Íslendingar muni ekki fá neina sérmeðferð í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Hún vill að fram fari tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla um hugsanlega aðild Íslands að ESB. 11. júlí 2009 17:00 Afstaða til aðildarviðræðna að ESB hugsanlega tekin í kvöld Það gæti legið fyrir í kvöld hvort Íslendingar hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Síðari umræða um ályktun þar að lútandi fer fram á Alþingi í dag. Formaður Framsóknarflokksins leggst gegn því að tillaga stjórnarinnar um aðildarumsókn verði samþykkt. 10. júlí 2009 12:06 Miklar líkur á meirihluta fyrir umsókn Allt bendir til þess að Ísland muni á næstu dögum eða vikum sækja um aðild að Evrópusambandinu. Sjálfstæðismenn og minnst einn þingmaður VG leggja saman til tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu. 10. júlí 2009 06:00 Óvíst með afstöðu þingmanna Framsóknarflokksins Líklegt er að að meirihluti þingflokks Framsóknarflokksins greiði annað hvort atkvæði gegn aðildarumsókn að Evrópusambandinu eða sitji hjá við atkvæðagreiðsluna. Umræðum um aðildarumsóknina var framhaldið á Alþingi í morgun. 11. júlí 2009 12:45 Mest lesið Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Innlent Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Innlent Fleiri fréttir Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Sjá meira
Ólíklegt að kosið verði um ESB á mánudag Ólíklegt er að hægt verði að greiða atkvæði um þingsályktun um aðildarumsókn að Evrópusambandinu á mánudag, eins og forsætisráðherra vonaðist til. Umræður um málið hafa haldið áfram á Alþingi frá klukkan hálf ellefu í morgun og lauk nú á þriðja tímanum. Næsti fundur Alþingis er klukkan þrjú á mánudag en nú eru enn 17 manns á mælendaskrá. 11. júlí 2009 14:59
Ekki útilokað að búið verða sækja um ESB-aðild í næstu viku Ekki er útilokað að Íslendingar verði búnir að sækja um aðild að Evrópusambandinu fyrir lok næstu viku að mati utanríkisráðherra. Þingsályktunartillaga um aðildarumsókn fer í síðari umræðu á Alþingi á morgun en sjálfstæðismenn ætla að óbreyttu að greiða atkvæði gegn tillögunni. 9. júlí 2009 18:44
Kvartaði undan samflokksmönnum Alþingi Þingmenn ræddu kosti og galla þess að senda Evrópusambandinu (ESB) aðildarumsókn í allan gærdag og fram eftir kvöldi, og stóð þingfundur enn þegar Fréttablaðið fór í prentun. 11. júlí 2009 03:15
Útlit fyrir að aðildarviðræður verði samþykktar með 35 atkvæðum Útlit er fyrir að þingsályktunartillaga um aðild að Evrópusambandinu verði samþykkt með 35 greiddum atkvæðum á Alþingi. Fimm þingmenn Vinstri grænna, þar af einn ráðherra, munu greiða atkvæði gegn tillögunni. 11. júlí 2009 18:30
Vill tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, telur að Íslendingar muni ekki fá neina sérmeðferð í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Hún vill að fram fari tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla um hugsanlega aðild Íslands að ESB. 11. júlí 2009 17:00
Afstaða til aðildarviðræðna að ESB hugsanlega tekin í kvöld Það gæti legið fyrir í kvöld hvort Íslendingar hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Síðari umræða um ályktun þar að lútandi fer fram á Alþingi í dag. Formaður Framsóknarflokksins leggst gegn því að tillaga stjórnarinnar um aðildarumsókn verði samþykkt. 10. júlí 2009 12:06
Miklar líkur á meirihluta fyrir umsókn Allt bendir til þess að Ísland muni á næstu dögum eða vikum sækja um aðild að Evrópusambandinu. Sjálfstæðismenn og minnst einn þingmaður VG leggja saman til tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu. 10. júlí 2009 06:00
Óvíst með afstöðu þingmanna Framsóknarflokksins Líklegt er að að meirihluti þingflokks Framsóknarflokksins greiði annað hvort atkvæði gegn aðildarumsókn að Evrópusambandinu eða sitji hjá við atkvæðagreiðsluna. Umræðum um aðildarumsóknina var framhaldið á Alþingi í morgun. 11. júlí 2009 12:45