Ekki útilokað að búið verða sækja um ESB-aðild í næstu viku Höskuldur Kári Schram skrifar 9. júlí 2009 18:44
Ekki er útilokað að Íslendingar verði búnir að sækja um aðild að Evrópusambandinu fyrir lok næstu viku að mati utanríkisráðherra. Þingsályktunartillaga um aðildarumsókn fer í síðari umræðu á Alþingi á morgun en sjálfstæðismenn ætla að óbreyttu að greiða atkvæði gegn tillögunni. Utanríkismálanefnd Alþingis afgreiddi tillöguna úr nefnd eftir átakfund í morgun. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, gerði athugasemdir við álit meirihluta en skrifaði að lokum undir með fyrirvara. Vill hún líkt og sjálfstæðismenn að boðað verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort ganga skuli til viðræðna. Framsóknarmenn skiluðu einnig séráliti en þeir vilja að sett séu skýr skilyrði fyrir inngöngu íslands í sambandið. Málið kemur til kasta Alþingis á morgun en væntanlega fer atkvæðagreiðsla ekki fram fyrr en á mánudag. „Við munum greiða atkvæði gegn tillögunni eins og hún lítur út núna vegna þess að hún uppfyllir ekki þau skilyrði sem við erum að setja," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir aðspurð hvort sjálfstæðismenn greiði atkvæði gegn tillögunni eða komi til meða að sitja hjá. Fulltrúi borgarahreyfingarinnar í utanríkismálanefnd, Birgitta Jónsdóttir, skrifaði einnig undir meirihlutaálit nefndarinnar með fyrirvara. „Ég vil bara setja fyrirvara til þess að ef að það kæmu breytingartillögur sem ég vildi styðja þá vil ég passa upp á að ég sé ekki komin alveg inni í horn," segir Birgitta. Vinstir grænir eru þó klofnir í sinni afstöðu. „Þetta er mjög umdeilt mál og skiptar skoðanir í flestum ef ekki ölllum flokkum þannig að það þarf ekki að koma neinum á óvart að það gæti verið tvísýnt með það hvernig málinu reiðir af hér og í hvaða formi það verður og svo framvegis," segir Steingrímur J. Sigfrússon, fjármálaráðherra. Utanríkisráðherra telur fullvíst að tillagan verði samþykkt á Alþingi. Aðspurður hvort hægt sé að fullyrða að við verðum búin að sækja um aðild formlega fyrir lok næstu viku svaraði Össur. „Ég er búinn að vera svo lengi í pólitík að ég fullyrði ekki neitt. fyrr en það er í hendi. en ég vona það."
Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Sjá meira