Stefnir í metfjölda ferðamanna í ágúst 30. júlí 2009 05:45 Hér sést vatni sprautað yfir flugvél frá Icelandair þegar hún fór í jómfrúarferð sína vestur um haf til Seattle. Mynd/Bergsteinn
Salan erlendis frá stefnir í að vera 16 prósentum meiri í júlí og ágúst hjá Icelandair en á sama tíma í fyrra. „Þetta er mjög ánægjulegt í þessu árferði. Það stefnir í meiri fjölda en nokkru sinni fyrr á þessum tíma," segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair. Þó salan sé svipuð í heildina og í fyrra er erlendi markaðurinn að vinna upp tapið sem kemur frá Íslandi, að sögn Birkis, enda hefur Icelandair verið mikið að vinna í erlenda markaðnum. „Eftir bankahrunið tókum við eiginlega allar auglýsingar út á Íslandi og settum á erlenda markaðinn." Mest hefur fjölgun verið í sölu milli ára frá Frakklandi og talar Birkir um sprengingu í þeim efnum. Icelandair sér fram á 55 prósent aukningu þaðan í ágúst og er Frakklandsmarkaðurinn að fara fram úr þeim þýska „sem einhvern tímann hefði þótt saga til næsta bæjar," að sögn Birkis. Ferðamönnum fækkaði um þrjú prósent í janúar til júní á þessu ári miðað við árið í fyrra, samkvæmt tölum frá Samtökum ferðaþjónustu. „Við skiljum ekki alveg þær tölur því við höfum verið að horfa upp á tíu til fimmtán prósent aukningu til landsins á þessu tímabili," segir Birkir. Þó erfitt sé að meta fjölda bókana fram í tímann, því einhverjir panti flug á síðustu stundu, komi megnið af bókunum fjórum til tólf vikum fyrir brottför, að sögn Birkis. Einnig séu fá sæti laus í ágúst og því eigi þeir auðvelt með að meta þetta. Þrátt fyrir velgengnina hefur Icelandair þurft að segja um 430 manns upp á síðustu 18 mánuðum, að sögn Birkis. Nú starfa um 1.200 hjá fyrirtækinu og er stefnt að því að halda sama flugframboði og á síðasta ári, að sögn Birkis, en nýverið fór Icelandair að fljúga til Seattle. Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, segir gjörsamlega uppbókað framan af ágúst. Iceland Express dró áætlunarflug saman um 25 prósent í ágúst en eftir á að hyggja var það kannski of mikið, að mati Matthíasar. „Mikil aukning er á ferðamönnum í ágúst og fækkunin á Íslendingunum er ekki eins mikil og búist var við," segir Matthías sem segist hins vegar hafa áhyggjur af framhaldinu. „Við höfum áhyggjur af vetrinum og hvernig ferðamenn skila sér hingað sumarið 2010," segir Matthías sem segir Iceland Express nánast einbeita sér eingöngu að erlenda markaðnum.
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fleiri fréttir Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Sjá meira