Erlent

Áfram róstusamt í Acapulco

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Hermenn nálgast dvalarstað eiturlyfjahringsins fyrir bardagann á laugardaginn.
Hermenn nálgast dvalarstað eiturlyfjahringsins fyrir bardagann á laugardaginn.

Þrír lögreglumenn féllu í árás byssumanna í mexíkósku borginni Acapulco í gær, aðeins tveimur dögum eftir mannskæðan skotbardaga hersins við félaga í eiturlyfjahring þar sem 18 manns lágu í valnum og ferðamenn áttu fótum fjör að launa en borgin er vinsæll ferðamannastaður. Árásirnar í gær voru gerðar á tvær lögreglustöðvar og voru árásarmennirnir sennilega þeir sömu í báðum tilfellum þar sem um hálf klukkustund leið milli árásanna. Ekki er enn ljóst hvort árásirnar í gær tengist bardaganum á laugardag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×