Launin duga ekki fyrir vöxtunum af gjaldföllnum lánum Höskuldur Kári Schram skrifar 7. júlí 2009 19:11
Rúmlega eitt þúsund fleiri fjárnámsbeiðnir hafa verið skráðar hjá sýslumannsembætti Reykjavíkur á fyrstu sex mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Maður sem er kominn á svartan lista hjá fjármálafyrirtækjum eftir árangurslaust fjárnám, segir að laun hans dugi ekki einu sinni fyrir vöxtunum af gjaldföllnum lánum. Því er spáð að mörg þúsund heimili muni lenda í verulegum greiðsluerfiðeikum á næstu mánuðum vegna kreppunnar. Rúmlega 10.500 fjárnámsbeiðnir - vegna gjaldfallinna skulda - bárust sýslumannsembættinu í Reykjavík á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Á sama tíma í fyrra voru þær rétt rúmlega 9.500 talsins og fjölgar því um rúmlega eitt þúsund milli ára. Þá bárust embættinu 17 útburðarbeiðnir á fyrstu sex mánuðum ársins en þær voru 20 á sama tíma í fyrra. Hörður Ástþórsson rak lítið verktakafyrirtæki sem fór í þrot síðasta haust. Bankinn hirti vinnutækin - og Hörður var skyndilega orðinn atvinnulaus og hafði þar að auki ekki rétt á atvinnuleysisbótum til að þreyja þorrann. Skuldirnar gerðu því lítið annað en að hlaðast upp. „Við það að missa atvinnu getur maður ekki haldið neinum upp. Ekki borgað barnsmeðlög ekki séð neinum farborða eða neitt," segir Hörður. Hörður var atvinnulaus í 11 mánuði þar af 8 án bóta. Fyrr á þessu ári vart gert árangurslaust fjárnám hjá honum vegna meðlagsskulda. Við það lenti hann á svörtum lista hjá fjármálastofnunum. „Ég fæ ekki debetkort, ég fæ ekki visakort, ég fæ hvergi lán né fyrirgreiðslu í bönkum eða neinu vegna þess að ég er kominn á svartan lista, vegna þess að það var tekið árangurslaust fjárnám hjá mér vegna þess að ég gat ekki borgað barnsmeðlög," segir hann. Hörður gafst ekki upp ég fékk að lokum vinnu sem húsvörður. Aðspurður hvort hann sjái fram á að geta borgað upp sínar skuldir í nánustu framtíð svaraði Hörður: „Ekki með þessari gríðarlegu vaxtastefnu sem er á landinu hérna. Það gengur ekki upp. Því vextirnir eru nánast hærri en launin sem ég er með á mánuði."
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira