Erlent

Enginn er enn öruggur í Írak

Óli Tynes skrifar
Íraskur lögreglumaður dregur á brott lík eftir sprengjutilræðið.
Íraskur lögreglumaður dregur á brott lík eftir sprengjutilræðið. Mynd/AP

Átta manns létu lífið þegar bíl hlöðnum sprengiefni var ekið inn í lögreglurútu í bænum Kirkuk í Írak í gær. Það voru fimm lögreglumenn og þrír óbreyttir borgarar.

Þótt ofbeldisverkum hafi fækkað mjög í Írak undanfarin misseri er það ennþá svo að enginn getur í raun verið óhulltur ef hann hættir sér útfyrir dyr.

Í mörgum tilfellum eru jafnvel heimilin ekki öruggt skjól. Bretar hafa nú flutt allar bardagasveitir sínar frá Írak og aðeins er eftir lið sem hjálpar til við að þjálfa íraska hermenn og lögreglumenn.

Bandaríkin eru einnig að fara að fækka mjög í herliði sínu. Það er því ljóst að mikið mun mæða á íröskum öryggissveitum næstu árin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×