Erlent

Obama hikandi vegna myndbirtingar

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Þessi mynd var tekin í Abu Ghraib-fangelsinu árið 2004.
Þessi mynd var tekin í Abu Ghraib-fangelsinu árið 2004. MYND/AP

Barack Obama Bandaríkjaforseti vill að ákvörðun um birtingu allt að 2.000 ljósmynda, sem sýna bandaríska hermenn þjarma að föngum í fangelsum í Írak og Afganistan, verði borin aftur undir dómstóla en áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum hefur þegar úrskurðað að myndirnar skuli birta eigi síðar en 28. maí. Obama segist telja að myndbirtingin geti reynst hermönnunum á myndunum hættuleg auk þess sem hún geti ýtt undir hefndaraðgerðir hryðjuverkasamtaka. Þetta eru sömu rök og borist hafa frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu, en sumar myndanna eru teknar í hinu alræmda Abu Ghraib-fangelsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×