Erlent

Minnst 130 látnir í kjarreldum

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Slökkviliðsmaður hvílir lúin bein eftir harðvítuga baráttu.
Slökkviliðsmaður hvílir lúin bein eftir harðvítuga baráttu. MYND/AFP/Getty Images

Nú er talið að minnst 130 manns séu látnir af völdum kjarrelda sem geisað hafa í Ástralíu síðustu daga, einkum við suðausturströndina.

Björgunaraðilar lýsa eyðileggingunni sem hreinum hamförum enda hefur fjöldi heimila orðið eldunum að bráð. Verst er ástandið í Viktoríufylki og eru um 400 hermenn á leið þangað til að sinna neyðaraðstoð við hlið lögreglu og slökkviliðis. Kevin Rudd, forsætisráðherra Ástralíu, sagðist í samtali við CNN óttast að ástandið ætti eftir að versna til muna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×