Erlent

Apple bannar Jesú-skjámynd

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Myndin umdeilda.
Myndin umdeilda.

Hugbúnaðarfyrirtækið Apple hefur bannað eina af þeim skjámyndum sem voru í boði fyrir iPhone-símann. Myndin sýndi Jesú Krist en var búin þeim eiginleikum að notendur gátu skipt út andliti frelsarans fyrir sitt eigið. Þótti þetta brjóta í bága við eina af grunnreglum samningsins um iPhone þar sem fram kemur að skjámyndir megi ekki sýna neins konar hneykslanlegt eða niðrandi efni, né efni sem með venjulegri skynsemi megi telja vafasamt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×