Erlent

Hershöfðingjaskipti í Afganistan

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
David McKiernan.
David McKiernan. MYND/AFP/Getty Images

David McKiernan hershöfðingi, yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Afganistan, var leystur frá störfum í gær en Robert Gates varnarmálaráðherra hefur ákveðið að skipa annan hershöfðingja til að gegna embættinu eftir 11 mánaða starf McKiernans sem einfaldlega stóð sig ekki í stykkinu að mati yfirmanna sinna. Eftirmaður hans er Stanley McChrystal sem þykir henta betur í starfið, meðal annars vegna sérþekkingar á þéttbýlishernaði sem er að verða algengasta mynd átaka í Afganistan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×