Erlent

Demjanjuk framseldur Þjóðverjum

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
John Demjanjuk.
John Demjanjuk. MYND/Getty Images

Bandaríkjamenn framseldu Þjóðverjum í gær hinn meinta stríðsglæpamann John Demjanjuk eftir að tollverðir og starfsmenn útlendingaeftirlits sóttu hann á heimili hans í Cleveland í Ohio. Hæstiréttur ríkisins hafði þá synjað um alla frekari fresti á framsalinu. Ekið var með Demjanjuk í sjúkrabíl út á Cleveland-flugvöll og þaðan flogið rakleiðis til Þýskalands. Demjanjuk, sem er 89 ára gamall, er eftirlýstur af þýskum yfirvöldum vegna gruns um að bera ábyrgð á dauða 21 þúsund gyðinga í útrýmingarbúðunum Sobibor og Treblinka í Póllandi í valdatíð nasista.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×