Erlent

Leyfilegt að drepa óbreytta borgara

Óli Tynes skrifar
Eldur logar í byggingu eftir stórskotaliðsárás stjórnarhersins í fyrradag.
Eldur logar í byggingu eftir stórskotaliðsárás stjórnarhersins í fyrradag.
Mannréttindaráðherra Sri Lanka segir að þeim sé leyfilegt að drepa óbreytta borgara meðan það sé í réttu hlutfalli við þá hermenn sem þeir drepi.

Sameinuðu þjóðirnar saka Tamíla um að hindra óbreytta borgara í að komast frá vígvellinum þar sem stjórnarherinn er að saxa á síðasta vígi þeirra. Og Sameinuðu þjóðirnar saka stjórnarherinn að gera loftárásir og stórskotaliðsárásir á tTmíla án þess að taka tillit til þessara óbreyttu borgara.

Ekkert er að marka tölur sem koma frá vígvellinum og enginn veit í raun hvort óbreyttir borgarar þar falla fyrir tamílum eða stjórnarhernum. Mannréttindaráðherra Sri Lanka neitar því að þeir noti sprengjuflugvélar eða stórskotalið.

Ráðherrann segir að þeim sé fullkunnugt um að Tamílar myrði sjálfir óbreytta borgara til þess að reyna að fá alþjóðasamfélagið til þess að knýja í gegn vopnahlé.

Það vopnahlé muni þeir svo nota til þess að endurskipuleggja sig og vopnast á nýjan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×