Bandaríkjamenn biðjast afsökunar 7. maí 2009 04:45 Sært barn á sjúkrahúsi Tugir almennra borgara höfðu leitað skjóls undan átökunum þegar Bandaríkjaher gerði loftárás á mánudag.Nordiphotos/afp
Blóðug loftárás Bandaríkjahers á almenna borgara í Afganistan varpaði skugga á fund Baracks Obama Bandaríkjaforseta með forsetum Afganistans og Pakistans, sem heimsóttu hann í Hvíta húsið í gær. Hamid Karzai, forseti Afganistans, hefur ítrekað gagnrýnt Bandaríkjaher fyrir árásir sem þessa og gerði atburðina á mánudag að meginefni viðræðna þeirra. Hillary Clinton utanríkisráðherra sagði í gær að Bandaríkjamenn sæju innilega eftir því sem gerðist. Fulltrúar Rauða krossins komu á vettvang árásarinnar á þriðjudag og staðfestu að tugir manna hefðu farist, þar á meðal konur og börn. Fyrrverandi embættismaður stjórnarinnar í Afganistan fullyrti að árásin hefði kostað 120 manns lífið. Loftárásin var gerð í Bala Baluk í Farah-héraði á mánudagskvöld, stuttu eftir að hópur talibana hafði safnast saman í héraðinu, sem er í vestanverðu landinu, við landamæri Írans. Átök brutust út og svo virðist sem fólkið sem lést hafi leitað skjóls undan átökunum, en varð síðan fyrir bandarísku sprengjunum. Hörð átök í norðvesturhéruðum Pakistans settu einnig svip sinn á fundinn í Washington. Pakistanskar hersveitir réðust á uppreisnarlið talibana, sem hafði náð völdum í Swat-dal og Buner-héraði. Talið er að talibanar hafi þar yfir um sjö þúsund manna liði að ráða, en ríkisherinn er með 15 þúsund manns. Talibanar búa sig undir hörð átök og ætla ekkert að gefa eftir: „Vopnaðir bardagamenn hafa komið úr felum inn í borgirnar og hafa hertekið bæði borgaraleg hús og opinberar byggingar,“ sagði í tilkynningu frá stjórnarhernum. Barack Obama hefur lagt mikla áherslu á ástandið í Afganistan og Pakistan, þar sem talibanar og aðrir uppreisnarhópar hafa reynst erfiðir, bæði stjórnvöldum beggja ríkjanna og erlenda herliðinu í Afganistan. Robert Gates varnarmálaráðherra kom í gær til Kabúl, höfuðborgar Afganistans, til að kynna sér aðstæður. „Við höfum nýja stefnu, nýja hernaðaraðferð, nýjan sendiherra og við erum að senda marga nýja hermenn þangað, og ég vil bara fara á staðinn og kynna mér hvað þeir eru að gera,“ sagði Gates í Sádi-Arabíu í gær, áður en hann hélt upp í flugvélina sem flutti hann til Afganistans. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Fleiri fréttir Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Sjá meira