Endurreisnarsjóður í burðarliðnum á ný 30. júní 2009 04:00 Verktakafyrirtæki hafa átt undir högg að sækja eftir hrun. Fjárfestingasjóður mun ekki gera greinarmun á fyrirtækjum eftir atvinnugreinum. fréttablaðið/stefán „
Við erum að vinna skipulega að því að koma fjárfestingasjóði á koppinn í anda þeirra hugmynda sem komið höfðu fram. Það má segja að sú vinna sé komin í fastar skorður á nýjan leik,“ segir Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, um stofnun Fjárfestingasjóðs Íslands. Vinna við stofnun sjóðs til að styðja við lífvænleg fyrirtæki í vanda hófst skömmu eftir hrunið í október. Sú vinna féll niður í vetur en hófst aftur nýlega. Um áramótin beittu Samtök atvinnulífsins (SA) og Alþýðusambandið sér fyrir því á vettvangi lífeyrissjóðanna að stofnaður yrði á þeirra vegum Fjárfestingasjóður Íslands til að taka þátt í endurreisn atvinnulífsins. Hugmyndin var að sjóðurinn hefði 75 milljarða króna fjárfestingargetu til þriggja ára þar sem allir sjóðirnir myndu skuldbinda sig til þátttöku á þeim tíma. Alls rynnu 25 milljarðar til hans í þrjú ár og líftími sjóðsins var ætlaður tíu ár, en að þeim tíma liðnum yrðu allar fjárfestingar hans seldar. Frumvarp um breytingu á lögum um lífeyrissjóði var samþykkt í árslok 2008 til að auðvelda stofnun sjóðsins. Arnar segir að frágangur lífeyrissjóðanna á gjaldmiðlaskiptasamningum við skilanefndir gömlu bankanna sé forsenda fyrir stofnun fjárfestingasjóðsins. „Þetta uppgjör hefur tafið stofnun sjóðsins. Þessar viðræður hafa dregist, án þess að liggja beinlínis niðri, en við tókum þá ákvörðun fyrir nokkrum vikum að halda áfram með stofnun sjóðsins.“ Arnar segir að engar greiðslur verði reiddar af hendi inn í nýjan sjóð fyrr en búið sé að landa uppgjörinu við skilanefndirnar. Stofnun fjárfestingasjóðsins snertir ekki á hugsanlegri aðkomu lífeyrissjóðanna að fjármögnun opinberra framkvæmda; hvort sem þær eru í einkaframkvæmd eða ekki. Arnar segir að lífeyrissjóðirnir hafi hundrað milljarða í ráðstöfunarfé á ári eftir greiðslur lífeyris og tuttugu prósent af þeirri tölu hafi verið orðuð við fjárfestingar. Hann tekur fram að hvort og hvernig að slíkum fjárfestingum verði komið sé óráðið. Vinnuhópur sjóðanna og fjármálaráðuneytisins hafi verið stofnaður og skili tillögum í ágúst. Eins sé það hverjum sjóði í sjálfsvald sett að hvaða fjárfestingum þeir kunna að standa hjá hinu opinbera. Helst líta lífeyrissjóðirnir til samgöngumannvirkja í því samhengi. „Við höfum ákveðið fjármagn en að þessum tveimur atriðum erum við að vinna með skipulegum hætti þessa dagana“, segir Arnar.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Sjá meira