Peningaþvættið enn á borði saksóknara 26. ágúst 2009 06:00 Fíkniefni í pósti Fíkniefnin bárust til landsins í hraðsendingu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var um að ræða hér um bil sex kíló af amfetamíni.Samsett mynd
Ríkissaksóknari hefur ákært Gunnar Viðar Árnason fyrir innflutning á um sex kílóum af amfetamíni til landsins í hraðsendingu í vor. Rannsókn málsins leiddi til þess að tveir menn til viðbótar, Sigurður Hilmar Ólason og Ársæll Snorrason, voru einnig handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þeir eru hins vegar ekki ákærðir fyrir smyglið. Málið var margþætt og grunaði lögreglu að þeir Ársæll og Sigurður hefðu átt hlut í tiltölulega umfangsmiklu peningaþvætti erlendra fíkniefnasmyglara. Sá angi málsins liggur enn á borði Ríkissaksóknara og ekki er útilokað að hann leiði til ákæru. Gunnari Viðari var birt ákæran fyrir fíkniefnasmyglið á mánudag og verður hún þingfest á föstudag. Gunnar Viðar hefur setið í varðhaldi vegna málsins frá því 22. maí. Gunnar hefur áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamála, og hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm árið 2005 fyrir innflutning á fjórum kílóum af amfetamíni. Rannsókn lögreglu á tengslum þeirra Sigurðar og Ársæls við erlendu fíkniefnasalana hefur verið mjög umfangsmikil. Sigurður hefur játað að hafa stofnað fyrirtæki fyrir tvo menn, Ísraelsmanninn Erez Zizov og hinn hollenska Ronny Verwoerd, en neitar því alfarið að það hafi verið gert með það að augnamiði að þvætta fíkniefnagróða mannanna. Fyrir liggur að Ársæll kom mönnunum í samband við Sigurð, en Ársæll þekkir þá síðan hann sat inni í Hollandi. Lögreglan hleraði síma Sigurðar í lengri tíma, og kom meðal annars fyrir hlerunarbúnaði inni á skrifstofu hans. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru til upptökur af Sigurði og mönnunum tveimur að ræða peningaþvætti. Þá óskaði lögregla eftir upplýsingum um listaverkaeign Sigurðar vegna rannsóknarinnar, en Sigurður, sem hefur verið nokkuð umsvifamikill athafnamaður á Íslandi undanfarin ár, á myndarlegt listaverkasafn. Sigurður og Ársæll hafa báðir hlotið dóma fyrir fíkniefnasmygl. Ársæll hlaut fimm ára fangelsisdóm í svokölluðu BMW-máli og hafði áður hlotið fjögurra ára dóm í Hollandi. Hann afplánar nú eftirstöðvar fyrri dóms. Sigurður hlaut þriggja ára fangelsisdóm árið 2001 fyrir aðild að smygli á 30 kílóum af hassi til landsins. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður Fleiri fréttir Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Sjá meira