Innlent

Samkomulagið mikilvægur áfangi í endurreisn Íslands

Samkomulag um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu er mikilvægur áfangi við endurreisn íslensks efnahagskerfis og trausts Íslands á alþjóðavettvangi. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, á fundi með blaðamönnum í stjórnarráðinu í dag.

Lán Hollendinga og Breta til Tryggingarsjóðs innistæðueigenda er til 15 ára en fyrstu 7 árin þarf hvorki að greiða afborganir né vexti. Sem skilyrði fyrir lántökunni fær tryggingarsjóðurinn framselda kröfu breskra og hollenskra sparifjáreigenda í þrotabú Landsbankans.

Í samkomulagin er kveðið um 5,55% fasta ársvexti.

Með samkomulaginu er komið til móts við við að eyða óvissu um framvindu íslenskra efnahagsmála á næstu árum, að mati forystumanna ríkisstjórnarinnar.


Tengdar fréttir

Sigmundur Davíð: Íslendingar seldir í ánauð

Formaður Framsóknarflokksins segir að verið sé að selja Íslendinga í ánauð með samkomulagi sem undirritað var í nótt um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu. Hann segir samninginn vera ógn við sjálfstæði Íslands. „Þetta er rosalegt. Ég er búinn að vera hálfmiður minn frá því að þetta var kynnt í gærmorgun,“ segir formaðurinn.

Vextir af Icesave-láni 35 milljarðar á ári

Íslenska ríkið mun ábyrgjast um 640 milljarða króna skuld til Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi, samkvæmt samkomulagi sem náðst hefur við bresk yfirvöld. Lánið mun bera 5,5 prósenta vexti á ári, en hvorki þarf að greiða afborganir né vexti næstu sjö ár.

Framsóknarþingmaður: Stjórnin er að svíkja þjóðina

Eygló Harðardóttir, þingmaður og ritari Framsóknarflokksins, segir að með samkomulagi sínu við Breta og Hollendina um Icesave reikningana sé ríkisstjórnin að svíkja þjóðina. Hún segir að Samfylkingin hafi aldrei haft vilja til að kanna lagastöðu Íslands í málinu. „Ég tel þetta samkomulag vera mikil svik,“ segir þingmaðurinn.

Jóhanna og Steingrímur boða til blaðamannafundar

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa boðað til blaðamannafundar um lausn Icesavedeilunnar. Fundurinn hefst klukkan fjögur.

Ísland frjálst undan hryðjuverkalögum fyrir þjóðhátíð

Hryðjuverkalögum Breta gegn Íslendingum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verða aflétt eftir hálfan mánuð, samkvæmt samkomulagi íslensku samninganefndarinnar vegna Icesave við Breta og Hollendinga. Samningaviðræðum lauk um miðnætti í nótt.

Ekki lagalegar forsendur fyrir samkomulaginu um Icesave

Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, er ósáttur við að stjórnvöld hafi ákveðið að greiða Icesave reikningana. Fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að hann telji ekki lagalegar forsendur vera fyrir samkomulagi um greiðslurnar.

Bretar fagna Icesave samkomulaginu

Bresk stjórnvöld fagna Icesave samkomulaginu sem nú hefur náðst. Vilji Íslendinga, til að ábyrgjast skuldbindingar sínar og endurgreiða reikningseigendum, þykir sérstakt fagnaðarefni samkvæmt fréttavefnum BBV.

Samkomulagið betra en fyrri drög

Samkomulag það sem tókst í gærkvöldi um Icesave skuldbindingar Íslendinga er mun hagstæðara en drög að samkomulagi sem lágu fyrir í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde. Hryðjuverkalögum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verður aflétt eftir tæpan hálfan mánuð.

Gjaldþrot Seðlabankans stærra mál en Icesave

Gjaldþrot Seðlabankans er enn stærra mál en Icesave. Vaxtakjörin á Icesave láninu gera það þó að verkum að Icesave er í fyrsta sæti þegar kemur að álögum á þjóðina. Þetta segir Ólafur Arnarson, hagfræðingur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×