Geysir Green bauð kínverskum samstarfsmanni í Grímsá Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 26. ágúst 2009 14:57 Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis Green Energy. Mynd/ GVA
Forsvarsmenn Geysis Green Energy buðu kínverskum samstarfsmanni í veiði í Grímsá í Borgarfirði fyrir tveimur vikum. Íslandsbanki, sem er í eigu ríkisins, er stór eignaraðili að Geysi Green. Forstjóri fyrirtækisins segir veiðina hafa verið ákveðna að vel athuguðu máli. „Við erum með starfsemi í Kína eins og löngum er þekkt og okkar forsprakki þar var hér á landi. Við fórum með hann upp í Grímsá og leyfðum honum að sjá Ísland utan skrifstofuveggjana" segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis Green Energy. „Skutumst þarna upp eftir og reyndum að veiða en það gekk illa. Hann[Kínverjinn] fékk reyndar einn - maríulaxinn og borðaði hann á staðnum." Maðurinn sem um ræðir heitir Zhu Jiang. Hann hefur að sögn Ásgeirs starfað mikið fyrir Geysi í Kína. „Hann hefur staðið sig alveg rosalega vel og lyft okkar starfi í Kína á hærra plan," segir Ásgeir. Aðspurður hvort ekki sé hætta á að veiðiferðir sem þessar fari illa í almenning segir Ásgeir: „Auðvitað þarf maður að hugsa rosa vandlega hvað maður gerir og hvað ekki. Þetta var gert að vel athuguðu máli vel yfirlögðu í ljósi þess sem við vorum að gera í Kína. Þess vegna leyfðum við okkur í þessu tilviki að skreppa þarna uppeftir." Aðspurður um kostnaðinn segir hann daginn í Grímsá kosta um hundrað þúsund krónur. Hann segist ekki sjá eftir þeim útgjöldum. „Nei auðvitað ekki, en maður samt sem áður passar sig að stíga varlega til jarðar. En í samhengi við það sem við erum að gera er þetta ekki stór kostnaður. Það var lágt ris á þessu og ekkert í líkingu það sem verið hefur hér á árum áður." Ásgeir segir að Zhu Jiang hafi notað tímann til að hitta stjórn ENX Kína ehf, sem er eitt af dótturfyrirtækjum Geysis, sem og stjórnendur Geysis Green.
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Fleiri fréttir Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Sjá meira