Erlent

Krefst skaðabóta vegna verunnar í Guantanamo

Mohammed Jawad. Mynd/AP
Mohammed Jawad. Mynd/AP
Maður sem er sagður einn yngsti fangi sem hefur verið í haldi Bandaríkjastjórnar í fangabúðunum í Guantanamo-flóa á Kúbu ætlar í mál við bandaríska ríkið og krefja það um bætur vegna fangelsunarinnar.

Mohammed Jawad var látinn laus fyrr í vikunni og sendur aftur heim til Afganistans. Hann var handtekinn árið 2002 og sakaður um að hafa kastað handsprengju að tveimur bandarískum hermönnum og túlk þeirra í Afganistan. Þeir féllu ekki en særðust nokkuð.

Jawad er sagður hafa verið tólf ára þegar hann var tekinn og nítján ára í dag. Bandaríska varnarmálaráðuneytið dregur það í efa og segir Jawad eldri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×