Erlent

Hommar og lesbíur handtekin í Moskvu

Óeirðarlögreglan í Moskvu handtók fjöldan allan af samkynhneigðum einstaklingum í dag. Þeir vildu vekja athygli á réttindabaráttu samkynhneigðra í Rússlandi en borgarstjóri Moskvu, Yuri Luzhkov hefur meðal annars látið hafa eftir sér að gleðiganga samkynhneigðra í borginni sé „satanísk".

Meðal þeirra sem voru í göngunni var breski aktivistinn Peter Tatchell sem kallaði á meðan það var verið að handtaka hann: „Samkynhneigðir njóta engra réttinda í Rússlandi."

Síðan bætti hann við: „Við áköllum forsetann [Dimtry] Medvedev til þess að hitta okkur!".

Þá var Nikolai Alexeyev handtekinn en hann er nokkurskonar leiðtogi samkynhneigðra baráttumanna í Rússlandi. Hann mótmælti ásamt vini sínum sem var klæddur í kjól. Báðir voru þeir handteknir, vinurinn fyrir að vera í kjól - Nikolai fyrir að ganga með manni sem var klæddur í kjól.

Í frétt af málinu sem finna má á Reuters.com, kemur sérstaklega fram að lögreglan hafi ekki gengið í skrokk á hinum samkynhneigðu. Það sé þó eitthvað sem mótmælendurnir þurfi að þola þegar kastljós fjölmiðla beinast ekki að þeim.

Mótmæli samkynhneigðra kemur í kjölfar þess að Júróvisjón er haldið í Moskvu. Þeir sem laðast að keppninni eru oftar en ekki hrifnir af sama kyni.

Nokkrir listamenn sem munu keppa í kvöld hafa mótmælt hörku Rússa og jafnvel sagst ekki ætla að fara á svið í mótmælaskyni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×