Frekari niðurskurður í heilbrigðiskerfinu - hugsanlega uppsagnir Telma Tómasson. skrifar 27. ágúst 2009 18:33
Enn frekari niðurskurður í heilbrigðiskerfinu vofir yfir næstu mánuði og er umtalsverð óvissa í rekstri Landspítalans. Uppsagnir eru ekki útilokaðar. Gert var ráð fyrir alls um 7 til 8 milljarða króna sparnaði í heilbrigðiskerfinu, frá því sem áætlað var á fjárlögum fyrir þetta ár. Endanleg tala fyrir næsta ár er ekki ljós, en hins vegar liggja fyrir tillögur um frekari niðurskurð á borði heilbrigðisráðherra, sem þegir þunnu hljóði um þær, enn sem komið er. Farið er út í öll horn og niður í minnstu einingar í sparnaðaráformum, samkvæmt heimildum fréttastofu. Starfsemi Landspítalans - stærstu heilbrigðisstofnun landsins - hefur verið löguð eins og hægt er að ástandinu, en erfitt reynist að kortleggja nánustu framtíð. Björn Zoega, staðgengill forstjóra Landspítalans, segir starfsfólk hafa staðið vaktina við erfiðar aðstæður og vel það, en forðast verði í lengstu lög að niðurskurður komi niður á sjúklingum jafnvel þótt reksturinn sé kominn nálægt þolmörkum. Fundur verður haldinn með starfsmönnum Landspítalans í næstu viku, þar sem stjórnendur munu upplýsa um þær aðgerðir sem grípa þarf til á næstunni í rekstri spítalans.
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Gefur skít í helvítishótanir Trumps Innlent Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Veður Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Innlent Fleiri fréttir „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Sjá meira