Evrumaður var leiddur í gildru 18. desember 2009 01:45 evrusjóður Maðurinn var rændur evrum, sem námu um tveimur milljónum að verðmæti.
Fullvíst er talið að karlmaður, sem um það bil tíu þúsund evrum var rænt af í Súðarvogi síðastliðið þriðjudagskvöld, hafi verið leiddur í gildru. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hafði maðurinn, sem er rétt rúmlega tvítugur, boðið evrusjóðinn til sölu á netinu og fengið viðbrögð þar. Síðan var hringt í hann úr leyninúmeri. Hringjandinn kvaðst vera tilbúinn að kaupa evrurnar af honum ásamt öðrum manni. Mælti hann sér mót við manninn í Súðarvogi um tíuleytið um kvöldið til að gera viðskiptin. Þegar maðurinn mætti á staðinn hitti hann fyrir tvo grímuklædda menn. Þeir heimtuðu af honum evrurnar og sögðu honum að hann skyldi hafa verra af ef hann afhenti þær ekki mótþróalaust. Maðurinn taldi sig ekki eiga nema einn kost í stöðunni og lét hann því ræningjana hafa sjóðinn, sem nemur tveimur milljónum íslenskra króna. Þeir hurfu á braut að því loknu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer með rannsókn málsins. Meðal annars er mannanna tveggja leitað, en þar sem evrueigandinn þekkti hvorki haus né sporð á þeim og þeir voru grímuklæddir liggur ekki fyrir lýsing á þeim. - jss
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Innlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Fleiri fréttir Airbnb-íbúðir leigðar út undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sjá meira