Feðgum smyglað frá Rússlandi 2. júní 2009 04:00 Deilt er um forræði yfir finnsk-rússneskum dreng.
Deila er komin upp milli finnskra og rússneskra stjórnvalda eftir að sendiráðsstarfsmaður Finna í Sankti Pétursborg í Rússlandi smyglaði nýlega föður og ungum syni hans frá Rússlandi yfir landamærin til Finnlands í skottinu á bíl sínum. Rússar krefja Finna svara um hvort embættismaðurinn hafi verið að sinna embættisskyldum sínum þegar hann smyglaði feðgunum úr landi, að sögn Hufvudstadsbladet. Rimma Salonen, sem er rússneskur ríkisborgari, fór með son sinn, Anton, frá Finnlandi til Rússlands fyrir rúmu ári án samþykkis föðurins og notaði til þess falska pappíra. Hún fékk vinnu á leikskóla í borginni Nizhny Novgorod og settist þar að. Anton er finnskur ríkisborgari og hafði faðir hans fengið forræði yfir honum. Paavo Salonen, faðir drengsins, kom ári síðar til Rússlands og fór með Anton í finnska sendiráðið í Sankti Pétursborg. Þar dvöldust þeir í þrjár vikur. Simo Pietiläinen, lögfræðingur í finnska sendiráðinu, taldi þá útséð um að faðirinn fengi lausn sinna mála svo að hann kom feðgunum fyrir í skottinu á bíl sínum og ók með þá til Finnlands. Pietiläinen er enn opinberlega í þjónustu finnska utanríkisráðuneytisins en hefur verið sendur í leyfi og á ekki afturkvæmt til Sankti Pétursborgar. Rússar hafa mótmælt formlega við Alexander Stubb, utanríkisráðherra Finna. Stubb hefur á hinn bóginn sagt að stjórnvöld vilji finna lausn á málinu í friði og ró. - ghs
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Fleiri fréttir Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Sjá meira