Erlent

Rússar lofa gasi í dag

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Höfuðstöðvar Gazprom.
Höfuðstöðvar Gazprom.

Rússneski gasframleiðandinn Gazprom segist munu skrúfa á ný frá gasi til Evrópu klukkan sjö árdegis í dag. Þetta staðfestir Sergei Kypriyanov, talsmaður fyrirtækisins, í samtali við BBC.

Milljónir Evrópubúa hafa liðið gasskort vegna deilu Rússa og Úkraínumanna sem staðið hefur frá áramótum og hefur það bætt gráu ofan á svart hve kalt hefur verið í álfunni síðustu vikur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×