Óttast um tugi manna 18. ágúst 2009 04:15 Vatn flæddi inn í vélarklefa eftir að sprenging varð í tækjabúnaði.fréttablaðið/AP
Óttast er um tugi manna eftir að slys varð í stærstu vatnsaflsvirkjun Rússlands í gær. Staðfest var að tíu væru látnir, en allt að 65 að auki var saknað. Fjórtán slasaðir voru fluttir á sjúkrahús. Sprenging varð í spennubreyti í virkjuninni Sayano-Shushinskaja í sunnanverðri Síberíu, með þeim afleiðingum að veggir og loft vélarklefa virkjunarinnar eyðilögðust þannig að vatn flæddi inn. Engar skemmdir urðu á stíflu virkjunarinnar, sem er um það bil eins kílómetra löng, en hins vegar lak olía út í ána Jeniseí og barst niður með ánni. Tvær af tíu túrbínum virkjunarinnar eyðilögðust og sú þriðja er mikið skemmd. „Við erum sennilega að tala um að það taki nokkur ár frekar en nokkra mánuði að koma þremur af tíu túrbínum í samt lag aftur,“ sagði Sergei Shoigu, almannavarnaráðherra rússnesku stjórnarinnar. Rafmagn fór af um helmingi húsa í Abakan, höfuðborg Kakassíuhéraðs þar sem virkjunin er. Íbúar þar eru um 160 þúsund. Ekki var ljóst í gær hve margir íbúar í Síberíu urðu fyrir tjóni af völdum slyssins, en virkjunin útvegar tíu prósentum íbúa þar rafmagn. Álver rússneska álrisans Rusal gátu þó haldið áfram starfsemi sinni með rafmagni sem fengið var annars staðar frá.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira