Enski boltinn

Moyes minnkar leikmannahópinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nuno Valente í leik með Everton.
Nuno Valente í leik með Everton. Nordic Photos / Getty Images

David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, hefur ákveðið að minnka leikmannahóp sinn hjá Everton með því að losa sig við þó nokkra leikmenn.

Meðal þeirra eru bakvörðurinn Nuno Valente og miðvallarleikmaðurinn Andy van der Meyde. Valente missti sæti sitt í byrjunarliði Everton til Leighton Barnes eftir að hafa verið frá vegna meiðsla.

Van der Meyde kom til Everton frá Inter á Ítalíu fyrir fjórum árum síðar en hefur átt mjög erfitt uppdráttar síðan þá, bæði innan vallar sem utan.

Þá fengu fimm ungir leikmenn að vita að þeir fengju ekki nýjan samning við félagið og þá var ákveðið að endurnýja ekki lánssamning Segundo Castillo sem snýr þá aftur til Rauðu stjörnunnar í Belgrad.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×