Biskupar í Argentínu skera upp herör gegn fátækt 8. ágúst 2009 18:19
Biskupar í Argentínu hafa skorið upp herör gegn fátækt í landinu eftir að páfinn sagði snaraukna örbirgð þar í landi hneykslanlega. Argentínskir kirkjunnar menn telja um fjörutíu prósent landsmanna lifa við fátækt sem er langt umfram það sem stjórnvöld halda fram. Mörg þúsund Argentínumenn komu saman í Buenos Aires síðdegis í gær og báðu til Cayetano, verndardýrlings starfa og atvinnulausra. Það gerðu trúaðir kaþólikkar í landinu eftir að Benedikt páfi sextándi gerði fátækt í Argentínu að umræðuefni í ávarpi nýlega og sagði fjölgun fátækra í landinu hneyksli. Argentína hefur verið í fjárkröggum um langt skeið og leitaði á náðir Alþjóða gjaldeyrissjóðsins seint á tíunda áratug síðustu aldar. 2001 lýsti landið sig gjaldþrota en þá voru opinberar skuldir Argentínu fimmtíu og fjögur prósent af vergri landsframleiðslu, sem er töluvert minna en talið er að skuldir Íslands séu og geti orðið. Frá 2001 var hagvöxtur í landinu í sex ár en síðan hefur sigið á ógæfuhliðina að mati sérfræðinga. Stjórnvöld í Argentínu hafa frá áramótum talið að um fimmtán prósent þjóðarinnar, eða nærri sex milljónir Argentínumanna, búi við fátækt og það ekki breytt frá því alheimskreppan skall á í haust. Biskupar sem sjá raðir í súpueldhús þar sem þeir vinna telja að nú búi nærri fjörutíu prósent Argentínumanna við fátækt.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hafa borið kennsl á hinn látna Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Fleiri fréttir Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjá meira