Enski boltinn

Ronaldo mun stórtapa er hann selur húsið sitt

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. Nordic Photos/Getty Images

Cristiano Ronaldo malar gull í knattspyrnuheiminum en hann mun stórtapa á fasteignamarkaðnum þegar hann flytur frá Manchester.

Ronaldo keypti sér glæsivillu í útjaðri Manchester á síðasta ári. Hún var ekki ókeypis enda þurfti Ronaldo að punga út 3,8 milljónum punda fyrir húsið.

Hann eyddi svo 300 þúsund pundum í að gera villuna glæsilegri með nýrri sundlaug, líkamsræktarsal og öðru nauðsynlega sem verður að vera á hverju heimili.

Kreppan hefur aftur á móti haft áhrif á fasteignaverð í Englandi sem og annars staðar. Segja fasteignasalar í Manchester að hann muni þar af leiðandi aldrei fá meira en 3,5 milljónir punda fyrir húsið í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×