150 þúsund almennir borgarar innlyksa 21. apríl 2009 12:28
Uppreisnarmenn Tamíl Tígra á Srí Lanka saka stjórnarher landsins um að hafa varpað sprengjum á almenna borgara í sókn sinni í norðurhluta landsins. Stjórnvöld neita því og segja tígrana skjóta á borgara sem reyni að flýja átakasvæðið. Allt að 150 þúsund almennir borgarar eru innlyksa á átakasvæðinu. Talsmaður varnarmálaráðuneytisins á Srí Lanka segir að um fimmtíu þúsund almennir borgarar hafi flúið átakasvæðið þar sem stjórnarher og tígrarnir hafa barist af hörku síðustu mánuði. Það hafi gerst í gær og í morgun eftir að hermenn hafi brotið varnargarð sem tígrarnir hafi reist. Talið er að um 150 þúsund almennir borgarar séu ennþá innlyksa á tuttugu ferkílómetra strandsvæði þar sem stjórnvöld segja að eftirlifandi tígrar séu innikróaðir. Stjórnarherinn er nú sagður undirbúa lokasókn gegn uppreisnarmönnunum. Frestur sem eftirlifandi tígrar fengu til að gefast upp rann út í morgun án þess að þeir legðu niður vopn. Alþjóða Rauði krossinn hefur áhyggur af ástandinu. Mörg hundruð borgarar hafi fallið eða særst í bardögum síðustu vikna og ekki hafi tekist að koma hjálp til særðra nema að litlu leyti. Komi til stórsóknar geti orðið enn meira blóðbað. Talsmaður tígranna sagði í samtali við BBC í morgun að margir almennir borgarar hefðu fallið í loftárásum stjórnarhersins síðustu vikur og sprengjur meðal annars fallið á munaðarleysingjahæli. Talsmaður stjórnarhersins neitar þessu og segir að sprengjum hafi ekki verið varpað á svæði þar sem vitað hafi verið að almennir borgarar héldu til. Tígrarnir hafi hins vegar skotið á borgara á flótta til að tryggja að fleiri færu ekki af svæðinu. Ef allir borgarar forðuðu sér yrðu uppreisnarmennirnir auðveld bráð.
Tengdar fréttir Tamíl Tígrar saka herinn um árásir á borgara Talsmenn Tamíl Tígranna á Sri Lanka ásaka stjórnarherinn um að hafa gert loftárásir á óbreytta borgara á meðan herinn sótti fram á norðurhluta eyjarinnar. Stjórnvöld neita ásökunum og segja á móti að Tígrarnir sjálfir hafi skotið á almenna borgara. 21. apríl 2009 08:49 Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira
Tamíl Tígrar saka herinn um árásir á borgara Talsmenn Tamíl Tígranna á Sri Lanka ásaka stjórnarherinn um að hafa gert loftárásir á óbreytta borgara á meðan herinn sótti fram á norðurhluta eyjarinnar. Stjórnvöld neita ásökunum og segja á móti að Tígrarnir sjálfir hafi skotið á almenna borgara. 21. apríl 2009 08:49