Innlent

Enn rík óánægja með Icesave

mótmælt Andstæðingar frumvarps um ríkisábyrgð vegna Icesave hafa í engu breytt skoðun sinni þrátt fyrir samningaviðræður.fréttablaðið/vilhelm
mótmælt Andstæðingar frumvarps um ríkisábyrgð vegna Icesave hafa í engu breytt skoðun sinni þrátt fyrir samningaviðræður.fréttablaðið/vilhelm

Ekkert samkomulag er í höfn á meðal stjórnarflokkanna um afgreiðslu frumvarps um ríkis­ábyrgð vegna Icesave-samninganna. Heimildir Fréttablaðsins herma að frétt Ríkisútvarpsins í gær um hið gagnstæða hafi farið illa í andstæðinga samningsins í röðum stjórnarliða.

Meirihluti fjárlaganefndar fundaði í gær með þeim sem gagnrýnastir hafa verið á frumvarpið.

Heimildir Fréttablaðsins herma að enn sé stefnt að því að ná samstöðu með stjórnarandstöðunni; raunar leggi hörðustu andstæðingar innan Vinstri grænna ríka áherslu á það. Heimildir innan Sjálfstæðisflokksins segja að mögulega gæti flokkurinn stutt frumvarpið, ef hann komi að því að semja fyrirvarana. Minni líkur eru á stuðningi hinna stjórnarandstöðuflokkanna.

Fjárlaganefnd hefur fundað alla vikuna og stefnt er að fundi í dag. Nefndin mun ekki afgreiða málið fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku. Ljóst er að andstaðan við frumvarpið hefur ekki minnkað, þvert á móti. Það er því ólíklegt að það njóti þingmeirihluta nema þeir fyrirvarar sem settir verða við það verði mjög afgerandi.

Þeirri hugmynd hefur verið hreyft að hefja þegar viðræður við Breta og Hollendinga vegna þeirrar óánægju sem er með samninginn á Alþingi. Um þá leið er þó engin sátt.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×