Tjá sig ekki um niðurfellingu 8. júlí 2009 05:45 Auk Björgólfsfeðga var Magnús Þorsteinsson kaupandi að stórum hluta í Landsbankanum. Magnús er gjaldþrota.fréttablaðið/þök
Talsmaður Björgólfsfeðga, Ásgeir Friðgeirsson, vill ekki tjá sig um hvort tilboð Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar um niðurfellingu á skuld þeirra við Nýja Kaupþing sýni að hinn síðarnefndi sé ekki borgunarmaður fyrir skuld sinni við Nýja Kaupþing. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær hafa Björgólfsfeðgar gert Nýja Kaupþingi tilboð um að greiða um helming af sex milljarða króna skuld þeirra við bankann. Skuldin er tilkomin vegna kaupa á hlut ríkisins í Landsbankanum árið 2002. Björgólfur Guðmundsson gaf upplýsingar um stöðu eigna sinna og skuldbindinga við Landsbankann í maí. Þar kom fram að persónulegar ábyrgðir hans hjá Landsbankanum námu þá um 58 milljörðum króna og eignir fyrirtækja hans höfðu rýrnað um 116 til 128 milljarða króna frá ársbyrjun 2008. Eignir hans á móti skuld við bankann voru þá metnar á um tólf milljarða. Krafa Kaupþings á hendur Samson í kröfulýsingu er tæpir sex milljarðar króna. Heildarkröfur í þrotabúið nema um 112 milljörðum króna. Lánardrottnar voru auk Kaupþings Landsbankinn, Straumur og Glitnir, auk þýsku bankanna Commerzbank og Standard. Helgi Birgisson, skiptastjóri þrotabúsins, segir að líkur á því að kröfuhafar endurheimti fjármuni sína þær sömu og fyrst eftir gjaldþrot eignarhaldsfélagsins. Féð sé að stórum hluta tapað.
Mest lesið Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Innlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Innlent Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Innlent Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Innlent Simmi vinsælasti leynigesturinn Innlent Fleiri fréttir Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sjá meira