Aung San Suu Kyi dregin fyrir dóm í Búrma Guðjón Helgason. skrifar 14. maí 2009 11:56
Stjórnarandstöðuleiðtoginn Aung San Suu Kyi verður dreginn fyrir dóm í Búrma vegna óvæntrar heimsóknar Bandaríkjamanns á rammgirt heimili hennar. Suu Kyi hefur mátt dúsa þar í stofufangelsi svo árum skiptir. Suu Kyi hefur verið í stofufangelsi á heimili sínum í Mjanmar, áður Búrma meira og minna í nítján ár eða frá því hún vann stórsigur í þingkosningum. Herforingjastjórnin í landinu neitaði að viðurkenna sigurinn og hneppti hana í fangelsi. Heimili hennar stendur við stöðuvatn en þar er strangur lögregluvörður, gaddavírsgirðing og vegatálmar. Fregnir bárust af því fyrir tæplega hálfum mánuði að bandarískur maður, John William Yettaw, hefði synt yfir vatnið við húsið og laumast inn til Suu Kyi. Hann mun hafa verið handtekinn á leiðinni til baka rúmum tveimur sólahringum síðar. Ekki hafa verið sögð nein deili af manninum eða hvaða erindi hann átti við stjórnarandstöðuleiðtogann. Fulltrúar bandarískra stjórnvalda hafa ekki fengið að hitta Yettaw. Eftir að hann var tekinn var lækni Suu Kyi bannað að hitta hana til að framkvæma mánaðarlega læknisskoðun. Aðstoðarmaður læknisins fékk hins vegar að hitta hana og sá segir hana veika. Með of lágan blóðþrýsting og hafa þjáðst af vökvatapi þegar hann hitti hana. Þá var óskað eftir að hún yrði látin laus en þeirri beiðni hafnað. Læknir fékk síðan að hitta Suu Kyi nokkrum dögum síðar og mun hún þá hafa verið öllu heilsuhraustari. Nú hefur lögfræðingur í Búrma staðfest í viðtali við breska ríkisútvarpið BBC að Suu Kyi verði lögsótt vegna heimsóknar Yettaw þar sem brotið hafi verið gegn reglum sem herforingjarnir hafi sett og séu forsendur þess að stjórnarandstöðuleiðtoginn fái að vera í stofufangelsi en ekki annars konar fangavist. Yettaw verði einnig ákærður fyrir brot gegn innflytjenda- og öryggislöggjöf landsins. Yfirvöld í Búrma hafa ekki staðfest þetta. Talið er að herforingjarnir hafi gripið málið svo tryggja megi að Suu Kyi verði haldið í stofufangelsi að minnsta kosti fram yfir kosningar á næsta ári sem þeir telja að veita stjórn þeirra nokkurt lögmæti. Annars var áformað að Suu Kyi yrði laus úr stofufangelsi sínu í þetta sinn í lok þess mánaðar. Heimildir BBC herma að lögmenn Suu Kyi muni reyna að fá ákærurnar felldar niður.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira