Pakistanskar hersveitir réðust í dag gegn talibönum 6. maí 2009 12:20
Pakistanskar hersveitir réðust í dag gegn talibönum í Swat héraði og beittu bæði stórskotaliði og orrustuþyrlum. Tilraunir stjórnvalda til að friðþægja talibana með því að láta þeim eftir land, virðast hafa mistekist. Eftir talsverðar skærur reyndu stjórnvöld í Pakistan að friða talibana með því að eftirláta þeim Swat hérað og leyfa þeim að setja þar upp íslamska sharía dómstóla. Blekið var varla þornað á þeim pappír þegar talibanar réðust með vopnavaldi inn í næsta hérað. Það er aðeins í um 100 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Islamabad. Á vesturlöndum höfðu menn miklar áhyggjur af þessari þróun ekki síst þar sem Pakistan er kjarnorkuveldi. Engum hugnast að talibanar taki völd í landinu og hafi þá yfir kjarnorkuvopnum að ráða. Bandaríkjamenn hafa leynt og ljóst hvatt Pakistana til að spyrna við fæti og eiga sjálfsagt einhvern þátt í þeirri sókn sem nú er hafin. Asif Ali Zardari, forseti Pakistans, er nú í Washington þar sem hann mun ræða við hinn bandaríska starfsbróður sinn, Barack Obama. Á stuttum fundi með fréttamönnum fullyrti hann að kjarnorkuvopn landsins væru í öruggri geymslu og engin hætta á að talibanar komi höndum yfir þau. Búist er við að á fundinum með Obama muni hann biðja um bæði auka hernaðar- og efnahagsaðstoð til þess að kljást við öfgahópa í landi sínu.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira