Átta handteknir fyrir ránið á Actic Sea 18. ágúst 2009 03:00 MYNDIR/AFP
Rússar hafa handtekið átta menn fyrir að ræna flutningaskipinu Arctic Sea. Skipið hvarf á Ermarsundi fyrir nærri þremur vikum. Rússneski flotinn fann í dag flutningaskipið Arctic Sea nærri Grænhöfðaeyjum. Fimmtán manna rússnesk áhöfn reyndist heil á húfi. Skipinu var siglt af stað þann 23. júlí síðastliðinn undir maltverskum fána með timburfarm frá Finnlandi sem flytja átti til Alsír. Farmurinn var metinn á jafnvirði nærri hundrað og sjötíu milljóna íslenskra króna. Nokkrum dögum eftir að siglt var af stað greindu finnskir eigendur Arctic Sea að þeim hefði borist tilkynning frá skipstjóra um að tíu vopnaðir menn hefðu ráðist um borð og haldið áhöfn í gíslingu í hálfan sólahring en síðan hafi mennirnir farið frá borði. Þeir voru sagðir hafa leitað eiturlyfjafarms um borð. Síðan hvarf skipið af ratsjá. Misvísandi upplýsingar bárust um staðsetningu þess eftir það. Ekkert samband hafði náðst við skipið í tæpar þrjár vikur. Ýmsar tilgátur voru uppi um örlög skipsins og skipverja. Líklegast var þó talið að skipinu hefði verið rænt. Um liðna helgi var tilkynnt að finnskum eigendum skipsins hefði borist lausnargjaldskrafa en ekki var vitað hvort hún var frá einhverjum sem í raun hefðu skipið á sínu valdi. Fregnir bárust síðan af því að skipið hefði sést nærri Grænhöfðaeyjum. Í gær var svo staðfest að Rússneski sjóherinn hefði fundið skipið. Í morgun hafði síðan rússneksa Itar-Tass fréttastofan eftir Anatoly Serdyukov, varnarmálaráðherra Rússlands, að átta menn hefðu verið handteknir fyri að ræna skipinu. Tveir Rússar, tveir Lettar og fjórir Eistar hafi komið um borð í sænskri landhelgi aðeins degi eftir að skipinu var siglt frá Finnlandi. Þeir hafi logið því til að báturinn þeirra væri bilaður. Þegar um borð hafi verið komið hafi mennirnir átta dregið upp vopn og fyrirskipað að skipinu skyldi siglt til Afríku. Síðan hafi þeir slökkt á siglingatækjunum um borð.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira