Erlent

Biður páfa um að fordæma Íran

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels. MYND/AP
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels. MYND/AP
Benjamin Netanyahu nýr forsætisráðherra Ísraels segist hafa beðið Benedikt páfa um að fordæma hótanir Írans um að tortíma landi sínu. Hann segist hafa beðið páfa á fundi þeirra í Nasaret um að tala gegn forseta Írans, Mahmoud Ahmadinejad, sem hefur kallað eftir eyðileggingu Ísraels.

Benedikt páfi hefur ítrekað kallað eftir sjálfstæðu ríki Palsestínu sérstaklega eftir að hann hitti palestínska flóttamenn í flóttamannabúðum í Betlehem á miðvukdag. Netanyyahu hefur talað gegn þessum óskum páfans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×