Erlent

Saberi laus úr haldi - komin til Vínar

Roxana Saberi
Roxana Saberi
Bandaríska blaðakonan Roxana Saberi lenti í dag í Vín í Austurríki. Fyrir tveimur dögum fagnaði hún frelsi á ný eftir að hafa verið í fjóra mánuði í fangelsi í Teheran. Um miðjan apríl dæmdi íranskur dómstóll Saberi, sem einnig hefur íranskt ríkisfang, í átta ára fangelsi fyrir njósnir eftir stutt, leynilegt réttarhald.

Áfrýjunardómstóll breytti dómnum í tveggja ára skilorðsbundinn dóm. Lögmaður hennar upplýsti í fyrradag að hún hefði fyrst og fremst verið dæmd vegna þess að hún hefði heimsótt Ísrael og haft í vörslu sinni trúnaðarskjal úr írönsku stjórnsýslunni um átökin í Írak.

Við komuna til Vínar hélt Saberi stutta tölu þar sem hún sagðist hafa valið að koma þangað þar sem borgin væri hlýlega og afslappandi. Einnig hefði sendihera Austurríkis og fjölskylda hans verið afar hjálpsöm á meðan hún sat í fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×